Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 722/2020

Nr. 722/2020 3. júlí 2020

AUGLÝSING
um gjaldskrá vegna stöðvunarbrota í Seltjarnarnesbæ.

1. gr.

Stöðvunarbrotagjald vegna stöðvunarbrota sbr. a.-e. liði 1. mgr. 109. gr. umferðarlaga nr. 77/2019, að undanskildum a-lið 2. mgr. 29. gr., sbr. b-lið 1. mgr. 109. gr. skal vera 5.000 kr.

 

2. gr.

Stöðvunarbrotagjald vegna a-liðar 2. mgr. 29. gr., sbr. b-lið 1. mgr. 109. gr. umferðarlaga nr. 77/2019 (bílastæði fatlaðra) skal vera 10.000 kr.

 

3. gr.

Frestur til að andmæla stöðvunarbrotagjöldum er 28 dagar frá dagsetningu álagningar.

 

4. gr.

Séu gjöldin greidd innan 14 daga frá álagningu gilda ofangreindar fjárhæðir, en hækka eftir það um 50%, sbr. 5. mgr. 109. gr. umferðarlaga nr. 77/2019. Sé gjald enn ógreitt þegar 28 dagar eru liðnir frá álagningu, hækkar það um 100% frá upphaflegu gjaldi, án tillits til undangenginnar 50% hækkunar eftir 14 daga, sbr. 6. mgr. 109. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.

 

5. gr.

Gjaldskrá þessi sem bæjarstjórn Seltjarnarnesbæjar hefur samþykkt staðfestist hér með samkvæmt 5. mgr. 109. gr. umferðarlaga nr. 77/2019 með síðari breyt­ingum og reglum um álagningu og innheimtu gjalds vegna stöðvunarbrota nr. 104/1988 með síðari breyt­ingum. Gjaldskrá þessi öðlast gildi við birtingu og á sama tíma fellur úr gildi auglýsing um gjaldskrá vegna stöðvunarbrota í Garðabæ, Sveitarfélaginu Álftanesi, Hafnarfjarðarkaupstað, Kópavogsbæ, Seltjarnarneskaupstað og Mosfesllsbæ nr. 413/2010, að því er varðar Seltjarnarnesbæ.

 

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 3. júlí 2020.

 

Sigurður Ingi Jóhannsson.

Ragnhildur Hjaltadóttir.


B deild - Útgáfud.: 21. júlí 2020