Samningur milli ríkisstjórnar Íslands og ríkisstjórnar Lýðveldisins Indlands til að komast hjá tvísköttun og koma í veg fyrir undanskot frá skattlagningu á tekjur, sem gerður var í Nýju Delí 23. nóvember 2007, öðlaðist gildi 21. desember 2007. Samningurinn er birtur sem fylgiskjal með auglýsingu þessari. Þetta er hér með gert almenningi kunnugt. Utanríkisráðuneytinu, 27. desember 2007. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. Grétar Már Sigurðsson. Fylgiskjal. (sjá PDF-skjal)
|