1. gr.
Gjaldskylda.
Fjallabyggð innheimtir gjald fyrir lagningu heimæðar skv. 5. gr. laga um vatnsveitur sveitarfélaga nr. 32/2004.
Jafnframt innheimtir sveitarfélagið vatnsgjald og notkunargjald skv. 6. og 7. gr. laganna.
2. gr.
Ráðstöfun gjalda.
Tekjum sveitarfélagsins vegna heimæðargjalds vatnsveitu skal varið til vatnsveituframkvæmda og skal gjaldið taka mið af gerð, stærð og lengd heimæða.
Vatnsgjald, ásamt öðrum tekjum vatnsveitu, skal standa undir rekstri vatnsveitunnar, þ.m.t. fjármagnskostnaði og fyrirhuguðum stofnkostnaði samkvæmt langtímaáætlun veitunnar.
3. gr.
Heimæðargjald vatnsveitu.
Þvermál heimæðar pe – mm |
Verð í kr. |
Verð í kr. pr. metra umfram 30 metra |
32 |
244.700 |
6.660 |
40 |
322.290 |
9.050 |
50 |
366.530 |
10.370 |
63 |
415.430 |
11.560 |
75 |
446.440 |
12.160 |
90 |
644.690 |
18.240 |
Gjöldin miðast við að ídráttarrör fyrir heimlagnir hafi verið lagt á frostfríu dýpi frá tengistað vatnsveitu Fjallabyggðar við lóðarmörk, að tengistað (inntaksstað) mannvirkis, og að lega og frágangur ídráttarrörsins hafi verið tekin út og samþykkt af starfsmönnum vatnsveitu.
Innifalið í heimæðargjaldi er allt að 30 metra lögn. Ef heimæð er lengri en 100 metrar þá skal samið sérstaklega um heimæðargjald. Heimæðargjald fyrir inntök > 90 mm er reiknað út hjá vatnsveitu Fjallabyggðar.
4. gr.
Aukagjöld vegna sérstakra aðstæðna.
Við sérstakar aðstæður, s.s. vegna frosts í jörðu og sprengingar á klöpp, skal greitt sérstakt álag er nemur 25% sem leggst ofan á heimæðargjald skv. 3 gr.
Þurfi að koma til dælingar vegna vatnsaga við lagningu heimæða, skal lóðarhafi greiða eftirfarandi:
|
Vatnsdæla |
4.160 kr./sólarhring |
|
Rafstöð fyrir dælu |
6.070 kr./sólarhring |
5. gr.
Vatnsgjald.
Árlega skal greiða vatnsgjald af öllum fasteignum í sveitarfélaginu sem tengdar hafa verið vatnsveitu. Álagningarstofn gjaldsins skal vera fasteignamat viðkomandi fasteigna. Fjárhæð gjaldsins skal nema 0,275% af fasteignamati viðkomandi fasteignar, ásamt lóð.
6. gr.
Notkunargjald.
Þar sem vatn frá vatnsveitu er notað til atvinnustarfsemi eða annars en venjulegra heimilisþarfa skal innheimt sérstakt notkunargjald. Fjárhæð notkunargjalds er 19 kr. á rúmmetra vatns, skv. mælingu.
Reglur um afslætti til stórnotenda:
|
Flokkur |
Magn |
Afsláttur |
|
Almennt gjald |
100.000 m³ |
0% |
|
1. Afsláttarflokkur |
100.001 – 250.000 m³ |
15% |
|
2. Afsláttarflokkur |
250.001 – 400.000 m³ |
25% |
|
3. Afsláttarflokkur |
400.001 – 500.000 m³ |
35% |
|
4. Afsláttarflokkur |
> 550.000 m³ |
45% |
7. gr.
Mælaleiga.
Þeim sem skylt er að greiða notkunargjald skv. 6. gr. skulu látnir í té vatnsmælar. Notandi skal sjá fyrir aðstöðu fyrir mæli. Vatnsveitan er eigandi mælanna og skal greidd fyrir þá ársleiga sem hér segir:
|
Stærð mælis |
Mælaleiga á ári |
|
að 20 mm |
8.460 kr. |
|
20 – 24 mm |
11.250 kr. |
|
25 – 31 mm |
14.040 kr. |
|
32 – 39 mm |
17.060 kr. |
|
40 – 49 mm |
22.630 kr. |
|
50 – 74 mm |
67.690 kr. |
|
75 – 99 mm |
73.380 kr. |
|
100 mm og stærri |
78.720 kr. |
8. gr.
Gjald fyrir útselda vinnu starfsmanna í þjónustumiðstöð Fjallabyggðar er sem hér segir:
|
Starfsmaður |
Verð pr./klst. |
|
Verkstjóri |
kr. 6.667 + vsk |
|
Vélamaður |
kr. 6.084 + vsk |
|
Iðnaðarmaður |
kr. 6.667 + vsk |
|
Verkamaður |
kr. 5.448 + vsk |
9. gr.
Gjalddagar.
a) |
Heimæðargjald: Gjalddagi heimæðargjalds vatnsveitu miðast við útgáfu byggingarleyfis. Í þeim tilvikum þegar lóðarhafi, með samþykki skipulags- og umhverfisnefndar, nýtir lóð undir annað en byggingu miðast gjalddagi heimæðargjalds við tengingu heimæðar. |
b) |
Vatnsgjald: Gjalddagar vatnsgjalds skulu vera þeir sömu og bæjarstjórn ákveður fyrir fasteignaskatt og skal innheimtu þess hagað á sama hátt og innheimtu fasteignaskatts. |
c) |
Notkunargjald: Gjalddagar notkunargjalds eru á fjögurra mánaða fresti. Eindagi er 20 dögum eftir gjalddaga. |
d) |
Mælaleiga: Gjalddagi leigugjalds fyrir mæli er 1. febrúar. Eindagi er 20 dögum eftir gjalddaga. |
10. gr.
Greiðsluskilmálar.
Heimilt er að semja um greiðslur heimæðargjalda vatnsveitu til allt að 18 mánaða frá gjalddaga. Allar greiðslur bera almenna bankavexti.
11. gr.
Innheimta o.fl.
Skráður eigandi fasteignar ber ábyrgð á greiðslu vatnsgjalds og heimæðargjalds en notandi, ef hann er annar en fasteignareigandi, ber ábyrgð á greiðslu notkunargjalds.
Gjöldin njóta lögveðsréttar í lóð og mannvirkjum í næstu tvö ár eftir gjalddaga með forgangsrétti fyrir hvers konar samningsveði og aðfararveði.
Heimilt er að loka fyrir heimæðar hjá þeim sem vanrækja að greiða notkunargjald að undangenginni skriflegri aðvörun.
Notkunargjald og leigugjald fyrir mæli, ásamt áföllnum kostnaði og vöxtum er heimilt að taka fjárnámi.
12. gr.
Uppfærsla.
Gjaldskrá þessa skal bæjarstjórn taka til endurskoðunar við gerð fjárhagsáætlunar ár hvert.
13. gr.
Gildistaka.
Gjaldskrá þessi er sett af bæjarstjórn Fjallabyggðar með heimild í 10. gr. laga nr. 32/2004 um vatnsveitur sveitarfélaga, 11. gr. reglugerðar um vatnsveitur sveitarfélaga nr. 401/2005 og III. kafla vatnalaga nr. 15/1923. Gjaldskráin öðlast gildi við birtingu í Stjórnartíðindum. Frá sama tíma fellur úr gildi gjaldskrá nr. 1508/2022 fyrir vatnsveitu í Fjallabyggð.
Samþykkt í bæjarstjórn Fjallabyggðar 14. desember 2023.
Fjallabyggð, 15. desember 2023.
Sigríður Ingvarsdóttir bæjarstjóri.
|