1. gr.
Þvingunaraðgerðir.
Eftirfarandi töluliður skal bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar, í réttri númeraröð:
|
5.7 |
Reglugerð ráðsins (ESB) 2024/669 frá 19. febrúar 2024 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 2580/2001 um sérstakar þvingunaraðgerðir sem er beint gegn tilteknum aðilum og rekstrareiningum í því skyni að berjast gegn hryðjuverkastarfsemi, sbr. fylgiskjal 5.7. |
2. gr.
Gildistaka o.fl.
Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 6. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna, nr. 68/2023, öðlast þegar gildi.
Utanríkisráðuneytinu, 7. mars 2024.
Bjarni Benediktsson.
Martin Eyjólfsson.
Fylgiskjal. (sjá PDF-skjal)
|