Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1221/2015

Nr. 1221/2015 18. desember 2015

REGLUGERÐ
um greiðslumark sauðfjár á lögbýlum 2016.

1. gr.

Beingreiðslur og greiðslumark lögbýla.

Heildarfjárhæð beingreiðslna árið 2016 er 2.538 m.kr. Heildargreiðslumark sauðfjár á lögbýlum 1. janúar 2016 er 368.457 ærgildi. Beingreiðslur til lögbýla taka breytingum í samræmi við ákvæði IX. kafla búvörulaga nr. 99/1993, með síðari breytingum.

2. gr.

Handhafar beingreiðslna.

Handhafi beingreiðslna er ábúandi lögbýlis.

Matvælastofnun heldur skrá yfir rétthafa greiðslumarks lögbýla og handhafa beingreiðslna sam­kvæmt því. Á hverju lögbýli skal aðeins einn framleiðandi vera skráður handhafi. Þó er heimilt, þegar um fleiri sjálfstæða rekstraraðila, er að ræða sem standa að búinu, að skrá þá sérstaklega. Sjálfstæður rekstraraðili telst sá einn sem hefur sjálfstætt virðisaukaskattsuppgjör.

Réttur til beingreiðslna flyst milli aðila innan lögbýlis við ábúendaskipti og við breytingu skráningar ef um hjón eða sambýlisfólk er að ræða.

Handhafar beingreiðslna skulu láta Matvælastofnun í té upplýsingar um sérstakan reikning í banka eða öðrum viðskiptastofnunum, sem greiðslur skulu lagðar inn á.

3. gr.

Aðilaskipti.

Aðilaskipti að greiðslumarki skulu taka gildi 1. janúar ár hvert og beingreiðslur greiðast nýjum handhafa frá sama tíma. Tilkynna skal Matvælastofnun aðilaskipti að greiðslumarki á eyðublöðum sem Matvælastofnun lætur í té fyrir 15. janúar ár hvert vegna beingreiðslna ársins.

Með tilkynningu um aðilaskipti að greiðslumarki sem bundið er við lögbýli, sbr. 1. og 2. mgr. 38. gr. búvörulaga, skal fylgja staðfesting um eignarhald að lögbýli og samþykki ábúanda, sameigenda og veðhafa í lögbýlinu.

Með tilkynningu um aðilaskipti að sérskráðu greiðslumarki í eigu ábúanda eða leiguliða við lok ábúðar eða leigu, sbr. 4. mgr. 38. gr. búvörulaga, skal fylgja staðfesting á eignarhaldi lögbýlis og því að eiganda jarðar hafi verið boðinn forkaupsréttur.

Matvælastofnun skal staðfesta aðilaskipti að greiðslumarki með áritun á tilkynningu og öðlast þau þá gildi frá og með 1. janúar, sbr. 2. mgr. 38. gr. búvörulaga. Matvælastofnun skal tilkynna báðum aðilum bréflega um staðfestingu aðilaskipta.

4. gr.

Búskaparhlé.

Lögbýli heldur greiðslumarki sínu óskertu þótt réttur til beingreiðslna falli niður vegna búskaparhlés án þess að samið sé um búskaparlok og greiddar bætur fyrir. Tilkynna skal Matvælastofnun fyrir 15. janúar ár hvert ef framleiðandi óskar eftir að fá beingreiðslur aftur að loknu hléi. Beingreiðslur greiðast handhafa frá og með 1. janúar það ár.

5. gr.

Ásetningshlutfall.

Til að fá óskertar beingreiðslur á árinu 2016 þarf handhafi að eiga að lágmarki 0,70 vetrarfóðraðar kindur fyrir hvert ærgildi greiðslumarks.

Ráðherra skal að fengnum tillögum framkvæmdanefndar búvörusamninga auglýsa ásetningshlutfall skv. 3. mgr. 39. gr. búvörulaga fyrir 20. september ár hvert vegna næsta almanaksárs.

Nái ásetningur ekki því lágmarki skerðast beingreiðslur hlutfallslega. Ef greiðslumarki lögbýlisins er skipt á fleiri en einn rekstraraðila, þá skal miðað við greiðslumark og ásetning hvers rekstraraðila fyrir sig.

6. gr.

Lækkun ásetningshlutfalls.

Ásetningshlutfall hjá framleiðendum sem hafa skorið niður fé til útrýmingar bótaskyldum sjúk­dómum skal á fyrsta almanaksári eftir fjártöku aðeins nema 1/3 af því sem ákveðið er sam­kvæmt 5. gr. og á öðru ári 2/3, til að þeir haldi fullum beingreiðslum.

Um lækkun ásetningshlutfalls á lögbýlum þar sem búfjárbeit kemur í veg fyrir eðlilega framkvæmd uppgræðslu eða veldur of miklu álagi á beitiland fer skv. 3. mgr. 39. gr. búvörulaga.

7. gr.

Gjalddagar beingreiðslna.

Beingreiðslur greiðast með níu jöfnum mánaðarlegum greiðslum 1. hvers mánaðar frá janúar til september ár hvert, þó þannig að greiðsla fyrir janúar fer fram 1. febrúar ásamt greiðslu fyrir þann mánuð. Beingreiðslur taka árlegum breytingum í samræmi við verðlagsuppfærslu fjárlaga. Ef þróun meðaltalsvísitölu neysluverðs verður önnur en verðlagsforsendur fjárlaga á árinu, skal mismunurinn leiðréttur í fjárlögum næsta árs.

8. gr.

Skerðing eða niðurfelling beingreiðslna.

Matvælastofnun er heimilt að skerða eða fella niður beingreiðslur ef sauðfjárframleiðandi gefur rangar upplýsingar um ásettan fjölda sauðfjár eða stundar ólöglega sölu eða dreifingu á kjöti af heimaslátruðu sauðfé eða brýtur á annan hátt reglur eða samningsbundin ákvæði um afsetningu afurða.

9. gr.

Fjármunir vegna skerðinga á beingreiðslum.

Skertum eða ónýttum beingreiðslum skv. 5. og 8. gr. skal ráðstafa til Bændasamtaka Íslands til markaðsaðgerða í sauðfjárrækt.

10. gr.

Ráðstöfun fjármuna í búvöru- og búnaðarlagasamningi.

Fjármunum sem ráðstafað skal samkvæmt samningi um starfsskilyrði sauðfjárræktar frá 25. janúar 2007, með síðari breytingum og fjármunum samkvæmt samningi um verkefni samkvæmt bún­aðar­lögum nr. 70/1998, dags. 28. september 2012, skal ráðstafað með eftirfarandi hætti:

  1. Framlögum vegna ullarnýtingar skal ráðstafa samkvæmt verklagsreglum í viðauka I.
  2. Framlögum til jarðræktar og hreinsunar afallsskurða skal ráðstafa samkvæmt verklags­reglum í viðauka II. Um framkvæmd úttekta vegna framlaga til jarðræktar og hreins­unar affalls­skurða, gilda verklagsreglur í viðauka III.
  3. Framlögum vegna úthlutunar bústofnskaupastyrkja til frumbýlinga skal ráðstafað í samræmi við verklagsreglur í viðauka IV.
  4. Framlögum vegna stuðnings við kennslu, rannsóknir, leiðbeiningar og þróun í sauðfjárrækt skal ráðstafað samkvæmt verklagsreglu í viðauka V.

11. gr.

Málskotsheimild.

Ákvörðun Matvælastofnunar um skráningu á greiðslumarki lögbýla og rétt til beinna greiðslna er heimilt að skjóta til úrskurðar ráðherra innan þriggja mánaða, sbr. VII. kafla stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

12. gr.

Viðurlög.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum samkvæmt búvörulögum nr. 99/1993, með síðari breytingum. Með mál út af brotum skal farið skv. lögum nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

13. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í búvörulögum nr. 99/1993, með síðari breytingum og búnaðarlögum nr. 70/1998, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi. Jafnframt er felld úr gildi reglugerð nr. 1100/2014 um greiðslumark sauðfjár á lögbýlum 2015.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 18. desember 2015.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Ólafur Friðriksson.

Rebekka Hilmarsdóttir.

VIÐAUKAR
(sjá PDF-skjal)

 


B deild - Útgáfud.: 30. desember 2015