Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1286/2024

Nr. 1286/2024 5. nóvember 2024

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 1138/2007 um stofnun Siglingaöryggisstofnunar Evrópu.

1. gr.

Við 2. gr. reglugerðarinnar bætist nýr stafliður:

  1. Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/1625 frá 14. september 2016 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1406/2002 um stofnun Siglinga­öryggisstofnunar Evrópu, sem vísað er til í XIII. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 328/2023 frá 8. desember 2023, með fyrirvara um gildissvið EES-samn­ingsins, sbr. sameiginlega yfirlýsingu samningsaðilanna sem fylgir ákvörðuninni. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/1625 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópu­sambandsins nr. 11 frá 1. febrúar 2024, bls. 479-481 og verður hluti af reglugerð þessari.

 

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 2. mgr. 40. gr. skipalaga nr. 66/2021 og 2. mgr. 10. gr. laga nr. 119/2012 um Samgöngustofu, stjórnsýslustofnun samgöngumála, öðlast þegar gildi.

 

Innviðaráðuneytinu, 5. nóvember 2024.

 

F. h. r.

Árni Freyr Stefánsson.

Vala Hrönn Viggósdóttir.


B deild - Útgáfud.: 19. nóvember 2024