Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1060/2020

Nr. 1060/2020 1. nóvember 2020

REGLUGERÐ
um takmörkun á skólastarfi vegna farsóttar.

1. gr.

Ákvörðun og markmið.

Með vísan til 2. mgr. 12. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997 hefur heilbrigðisráðherra ákveðið, að fenginni tillögu sóttvarnalæknis og í samráði við mennta- og menningarmálaráðherra, að takmarka skólastarf tímabundið eftir því sem hér greinir.

Markmið með reglugerð þessari er að tryggja að sem minnst röskun verði á skólastarfi vegna COVID-19 sjúkdómsins með ýtrustu sóttvarnarsjónarmið að leiðarljósi.

 

2. gr.

Gildissvið.

Takmörkun á skólastarfi tekur gildi frá og með 3. nóvember 2020 og gildir til og með 17. nóvember 2020.

Um fjöldatakmörkun í skólastarfi á hverju skólastigi fer eftir ákvæðum reglugerðar þessarar.

Stjórnvöld endurmeta þörf á takmörkun skólastarfs eftir því sem efni standa til, þ.e. hvort unnt sé að aflétta henni fyrr eða hvort þörf sé á að framlengja gildistíma hennar.

Takmörkun á skólastarfi tekur til leikskóla, grunnskóla, tónlistarskóla, framhaldsskóla, framhalds­fræðslu og háskóla, hvort sem um er að ræða opinbera eða einkarekna skóla. Þá tekur reglu­gerðin jafnframt til annarrar starfsemi, svo sem frístundaheimila og félagsmiðstöðva, sem og til íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarfs.

 

3. gr.

Leikskólar.

Leikskólum er heimilt, samkvæmt nánari ákvörðun sveitarfélaga, að halda uppi skólastarfi í skólabyggingum með 2 metra nálægðartakmörkum milli starfsfólks. Sé ekki unnt að tryggja 2 metra nálægðartakmörkun skal starfsfólk nota andlitsgrímur. Ekki skulu vera fleiri en 10 fullorðnir einstak­lingar í hverju rými. Ekki skulu vera fleiri en 50 leikskólabörn í hverju rými. Nálægðar­takmörkun tekur ekki til barna á leikskólaaldri.

Foreldrar og aðstandendur skulu almennt ekki koma inn í skólabyggingar nema brýna nauðsyn beri til. Viðvera foreldra sem dvelja inni á leikskóla vegna aðlögunar skal skipulögð þannig að þeir þurfi ekki að nota hreinlætis- eða mataraðstöðu í byggingunni og skulu þeir gæta að minnst 2 metra nálægðartakmörkun jafnt sín á milli sem og gagnvart starfsfólki. Aðeins eitt foreldri fylgi barni í aðlögun og skal það vera sama foreldrið sem fylgir barninu allt aðlögunartímabilið.

Stjórnendum leikskóla er heimilt að krefja foreldra um að nota andlitsgrímur.

Aðrir en starfsmenn sem koma inn á leikskóla, svo sem starfsfólk skólaþjónustu sveitarfélaga og vegna vöruflutninga, skulu gæta að 2 metra nálægðartakmörkun og bera andlitsgrímur.

Ráðstafanir skulu gerðar til að þrífa og sótthreinsa byggingar eftir hvern dag og milli hópa í sama rými.

Skipulagt íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarf barna á leikskólaaldri er óheimilt. Á þetta við um starf sem fer fram innan og utan leikskóla.

 

4. gr.

Grunnskólar.

Grunnskólum er heimilt, samkvæmt nánari ákvörðun sveitarfélaga, að halda uppi skólastarfi í skóla­byggingum með 2 metra nálægðartakmörkum milli starfsfólks. Sé ekki unnt að tryggja 2 metra nálægðartakmörkun skal starfsfólk nota andlitsgrímur. Ekki skulu vera fleiri en 10 starfs­menn í hverju rými, þó er starfsmönnum heimilt að fara milli hópa.

Nemendur í 1.–4. bekk eru undanþegnir 2 metra nálægðartakmörkun sem og grímuskyldu. Ekki skulu vera fleiri en 50 nemendur í 1.–4. bekk í hverju rými.

Um nemendur í 5.–10. bekk gildir 2 metra nálægðartakmörkun en ef víkja þarf frá henni ber nemendum að nota grímu. Ekki skulu vera fleiri en 25 nemendur í 5.–10. bekk í hverju rými.

Í sameiginlegum rýmum skóla, svo sem við innganga, í anddyri, á salerni og göngum, er heimilt að víkja frá fjöldatakmörkun og reglu um blöndun hópa að því gefnu að nemendur í 5.–10. bekk og starfsfólk notist við andlitsgrímu. Við aðstæður þar sem ekki er hægt að framfylgja nálægðar­takmörkun, svo sem í verklegri kennslu og listkennslu, skulu kennarar og nemendur í 5.–10. bekk nota andlitsgrímu.

Foreldrar og aðstandendur skulu almennt ekki koma inn í skólabyggingar nema brýna nauðsyn beri til. Stjórnendum grunnskóla er heimilt að krefja foreldra, þurfi þeir að koma inn í skóla­bygg­ingu, um að nota andlitsgrímur. Aðrir en starfsmenn sem koma inn í grunnskóla, svo sem kennarar tónlistarskóla sem koma inn í grunnskóla með einstaklingskennslu, starfsfólk skólaþjónustu sveitar­félaga og vegna vöruflutninga, skulu bera andlitsgrímur.

Ákvæði 1. mgr. tekur einnig til frístundaheimila fyrir nemendur í 1.–4. bekk. Halda skal sömu hópaskiptingu nemenda í grunnskólastarfi og á frístundaheimilum þannig að ekki verði blöndun milli nemendahópa.

Ráðstafanir skulu gerðar til að þrífa og sótthreinsa byggingar eftir hvern dag og milli hópa í sama rými.

Skipulagt íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarf, þ.m.t. starf félagsmiðstöðva, barna á grunn­skóla­aldri er óheimilt. Á þetta við um starf sem fer fram innan og utan grunnskóla.

Mötuneyti er heimilt að starfa samkvæmt gildandi ákvæðum um fjöldatakmarkanir og nálægð­ar­takmarkanir.

 

5. gr.

Tónlistarskólar.

Tónlistarskólum er heimilt að sinna einstaklingskennslu með 2 metra nálægðartakmörkun milli starfsfólks og nemenda. Ekki er fleiri en tíu einstaklingum, þ.e. starfsfólki og nemendum, heimilt að vera í sama rými í einu, en gæta þarf að því að ekki verði um frekari blöndun hópa að ræða en í skólastarfi. Andlitsgrímur skulu notaðar í öllu starfi með nemendum þar sem því verður við komið.

Foreldrar og aðstandendur skulu almennt ekki koma í tónlistarskóla nema brýna nauðsyn beri til. Aðrir en starfsmenn sem koma í tónlistarskóla, svo sem vegna vöruflutninga, skulu bera andlits­grímur.

Ráðstafanir skulu gerðar til að þrífa og sótthreinsa byggingar og búnað eftir hvern dag og milli einstaklinga og hópa í sama rými.

 

6. gr.

Framhaldsskólar.

Skólastarf á framhaldsskólastigi, í lýðskóla og framhaldsfræðslu er heimilt að því tilskildu að nemendur og starfs­fólk geti haft minnst 2 metra fjarlægð sín á milli og fjöldi nemenda og starfs­manna fari aldrei yfir 10 í hverju rými. Í áföngum sem skulu samkvæmt skipulagi brauta vera teknir á fyrsta námsári er heimilt að hafa allt að 25 einstaklinga í rými að því gefnu að unnt sé að halda 2 metra nálægðartakmörkun.

Í sameiginlegum rýmum skóla, svo sem við innganga, í anddyri, á salerni og göngum, er heimilt að víkja frá fjöldatakmörkun og reglu um blöndun hópa að því gefnu að notast sé við andlitsgrímu.

Við aðstæður þar sem ekki er hægt að framfylgja nálægðartakmörkun, svo sem í verklegri kennslu, listkennslu, klínísku námi og kennslu nemenda á starfsbrautum, skulu nemendur og kenn­arar nota andlitsgrímu.

Blöndun nemenda milli hópa er ekki heimil í kennslu en starfsfólki er heimilt að fara á milli hópa.

Aðrir viðburðir sem ekki teljast til kennslu eða náms skulu ekki fara fram í skólabyggingum. Tak­marka skal gestakomur í skólabyggingar.

Sameiginlegir snertifletir í kennslustofum skulu sótthreinsaðir eftir hverja við­veru nemenda­hópa. Jafnframt skal sótthreinsa sameiginlegan búnað og snertifleti a.m.k. einu sinni á dag og leggja áherslu á einstaklingsbundnar sóttvarnir.

Ákvæði þetta kemur ekki í veg fyrir að nemendur geti dvalið á heimavist.

Heimilt er að halda þýðingarmikil próf fyrir allt að 30 einstaklinga í vel loftræstum rýmum, að uppfylltri 2 metra nálægðartakmörkun og ýtrustu sóttvarnaráðstöfunum.

Mötuneyti er heimilt að starfa samkvæmt gildandi ákvæðum um fjöldatakmarkanir og nálægð­ar­markanir.

Ökunám og flugnám með kennara þar sem ekki er hægt að tryggja 2 metra nálægðartakmörkun milli nemenda og kennara er óheimilt.

 

7. gr.

Háskólar.

Í öllum byggingum háskóla er skólastarf heimilt að því tilskildu að nemendur og starfsfólk geti haft minnst 2 metra fjarlægð sín á milli og fjöldi nemenda og starfsmanna í hverri kennslustofu fari ekki yfir 10 í rými. Blöndun nemenda milli hópa er ekki heimil í kennslu en starfsfólki og kennurum er heimilt að fara á milli hópa.

Í sameiginlegum rýmum skóla, svo sem við innganga, í anddyri, á salerni og göngum, er heimilt að víkja frá fjöldatakmörkun og reglu um blöndun hópa að því gefnu að notaðar séu andlitsgrímur. Við aðstæður þar sem ekki er hægt að framfylgja nálægðar­takmörkun, svo sem í verklegri kennslu, listkennslu og klínísku námi, er skólastarf heimilt að gættum sóttvörnum og með því skilyrði að nemendur og kennarar noti andlitsgrímu.

Aðrir viðburðir sem ekki teljast til kennslu eða náms skulu ekki fara fram í skólabyggingum. Takmarka skal gestakomur í skólabyggingar.

Sameiginlegir snertifletir í kennslustofum skulu sótthreinsaðir milli nemendahópa.

Í háskólum skal sótthreinsa sameiginlegan búnað og snertifleti a.m.k. einu sinni á dag og leggja áherslu á einstaklingsbundnar sóttvarnir.

Heimilt er að halda samkeppnispróf, þýðingarmikil lokapróf og staðbundnar námslotur fyrir allt að 30 einstaklinga í vel loftræstum rýmum, að uppfylltri 2 metra nálægðartakmörkun og sóttvörnum í hvívetna.

 

8. gr.

Undanþágur.

Ráðherra getur veitt undanþágu frá takmörkun skólastarfs ef ekki er talin hætta á að slíkt fari gegn markmiðum opinberra sóttvarnaráðstafana. Ráðherra getur óskað eftir umsögnum frá sóttvarna­lækni og ráðherra sem fer með mennta- og menningarmál um beiðni um undanþágu.

 

9. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 12. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997, tekur gildi eftir því sem mælt er fyrir um í 2. gr. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 958/2020, um takmörkun á skólastarfi vegna farsóttar, með síðari breytingum.

 

Heilbrigðisráðuneytinu, 1. nóvember 2020.

 

F. h. r.

Ásta Valdimarsdóttir.

Ásthildur Knútsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 2. nóvember 2020