Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 316/2018

Nr. 316/2018 27. mars 2018

AUGLÝSING
frá ríkisskattstjóra um skil á upplýsingum vegna tekjuársins 2017, sbr. reglugerð nr. 1240/2015 um framkvæmd áreiðanleikakannana vegna upplýsingaöflunar á sviði skattamála.

Tilkynningaskyldar fjármálastofnanir, sbr. 1. og 2 tölul. 2. gr. reglugerðar nr. 1240/2015, með síðari breytingum, um framkvæmd áreiðanleikakannana vegna upplýsingaöflunar á sviði skattamála, skulu skila upplýsingum um erlenda reikningshafa, þó ekki bandaríska, til ríkisskattsstjóra vegna ársins 2017 eigi síðar en 31. maí 2018.

  1. Tilkynninga- og upplýsingaskylda tekur til reikninga erlendra aðila, (innlánsreikninga, vörslureikninga, vátryggingasamninga að tilteknu peningavirði og lífeyrissamninga).
    Þegar áreiðanleikakönnun skv. reglugerðinni leiðir í ljós að reikningshafi sé erlendur aðili, þ.e. einstaklingur eða lögaðili skal skila m.a. eftirfarandi upplýsingum:
    a)

    Nafni, heimilisfangi og erlendri skattkennitölu sérhvers tilgreinds erlends reikningshafa (einstaklings og lögaðila) sem á eða fer með tilkynningaskyldan reikning. Ef reikningshafi er lögaðili sem ekki telst vera erlendur en áreiðanleikakönnun skv. reglugerðinni leiðir í ljós að lögaðilinn hefur einn eða fleiri stjórnandi aðila, sem teljast vera erlendir aðilar, skal skila upplýsingum um nafn, heimilisfang og erlenda skattkennitölu sérhvers þess erlenda aðila sem telst vera stjórnandi aðili sbr. 40. tölul. 2. gr. reglugerðar nr. 1240/2015.

    b) Reikningsnúmeri eða ígildi þess.
    c) Reikningsstöðu í árslok 2017. Hafi reikningi verið lokað á árinu 2017 skal staða reiknings vera núll.
       
  2. Til viðbótar við framangreindar upplýsingar skal einnig skila eftirfarandi upplýsingum:
    a) Sé um innlánsreikninga að ræða skal skila upplýsingum um heildarfjárhæð greiddra eða tekjufærðra vaxta á árinu 2017.
    b) Sé um vörslureikning að ræða skal skila upplýsingum um heildarfjárhæð greiddra vaxta, arðs og annarra tekna, þ.m.t. sölu- og gengishagnað, sem myndast hefur vegna ávöxtunar þeirra eigna sem viðkomandi vörslureikningur hefur að geyma og hafa verið færðar sem tekjur inn á reikninginn (eða með tilliti til reikningsins) á árinu 2017.
       
  3. Sé reikningshafi óvirkur lögaðili sem ekki er fjármálastofnun, sbr. 42. tölul. 2. gr. reglu­gerðar nr. 1240/2015, skal upplýsa um nöfn, heimilisföng og erlendar skattkennitölur þeirra eigenda lögaðilans sem teljast erlendir aðilar.

  4. Tilkynningaskyldar fjármálastofnanir sem hafa enga reikninga í eigu eða umráðum erlendra aðila skulu staðfesta að svo sé með því að skila núllskýrslum til ríkisskattstjóra í samræmi við skilalýsingu.

Ef skilað er röngum eða ófullnægjandi upplýsingum til ríkisskattstjóra eða ef þær eru á annan hátt ekki samkvæmt skilalýsingu, skal tilkynningaskylda fjármálastofnunin eftir atvikum greiða þann kostnað sem af því kann að hljótast.

Upplýsingunum skal skilað rafrænt samkvæmt lýsingu á vef ríkisskattstjóra á slóðinni:

https://www.rsk.is/fagadilar/hugbunadarhus/crs/.

Allar fyrirspurnir um ofangreind gagnaskil má senda á netfangið: [email protected].

Auglýsing þessi er birt skv. 92., 93. og 94. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, sbr. 12. gr. reglugerðar nr. 1240/2015, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Reykjavík, 27. mars 2018.

F.h. ríkisskattstjóra,

Ingvar J. Rögnvaldsson.

Guðrún J. Jónsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 27. mars 2018