1. gr.
3. mgr. 1. gr. gjaldskrárinnar orðast svo:
Þóknun fyrir aukaverk presta miðast við einingar sem kjararáð ákvarðar þeim sem undir það heyra. Hver eining er 1% af launaflokki 136 í launatöflu kjararáðs nr. 502, nú 9.573 krónur. Verði breyting á launatöflu kjararáðs nr. 502, þannig að ný krónutala komi fyrir hverja einingu í stað þeirrar sem nú er, skal ráðherra innan mánaðar með auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda breyta gjaldskrá þessari til samræmis. Sama gildir ef kjararáð breytir viðmiði hvað varðar launaflokk eða prósentutölu í launatöflu sinni.
2. gr.
2. gr. gjaldskrárinnar orðast svo:
Þóknun fyrir hvert aukaverk prests er metin sem hlutfall af einingu kjararáðs skv. 3. mgr. 1. gr. gjaldskrárinnar og ennfremur tilgreind í krónutölu sem hér segir:
1. |
Skírn |
0,7 ein. kjararáðs eða |
6.701 kr. |
2. |
Ferming |
2,0 ein. kjararáðs eða |
19.146 kr. |
3. |
Hjónavígsla |
1,3 ein. kjararáðs eða |
12.445 kr. |
4. |
Útför |
2,6 ein. kjararáðs eða |
24.890 kr. |
5. |
Kistulagning |
0,8 ein. kjararáðs eða |
7.658 kr. |
6. |
Athöfn við jarðsetningu duftkers eða kistu |
0,8 ein. kjararáðs eða |
7.658 kr. |
7. |
Embættisvottorð |
0,2 ein. kjararáðs eða |
1.915 kr. |
Sá sem beiðist skírnar greiðir ekki þóknun verði skírnin við guðsþjónustu.
Kirkjugarðsstjórn greiðir ekki þóknun fyrir jarðsetningu duftkers eða kistu ef athöfn er í beinu framhaldi af útför.
3. gr.
Auglýsing þessi um breytingu á gjaldskrá nr. 729/2014, sem sett er samkvæmt lögum um embættiskostnað sóknarpresta og aukaverk þeirra nr. 36/1931, öðlast þegar gildi. Auglýsingin kemur í stað auglýsingar nr. 1146/2015.
Innanríkisráðuneytinu, 18. júlí 2016.
Ólöf Nordal.
Ragnhildur Hjaltadóttir.
|