Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1158/2024

Nr. 1158/2024 18. október 2024

REGLUGERÐ
um gildistöku reglugerðar Evrópusambandsins um aðferðina sem skilastjórnvöld munu nota til að meta kröfuna sem um getur í 104. gr. a í tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2013/36/ESB og samanlagða kröfu um eiginfjárauka fyrir skilaaðila á samstæðustigi skilasamstæðu ef skilasamstæðan fellur ekki undir þær kröfur samkvæmt þeirri tilskipun.

1. gr.

Með reglugerð þessari öðlast gildi framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1118 frá 26. mars 2021 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2014/59/ESB að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla þar sem tilgreind er aðferðin sem skilastjórnvöld munu nota til að meta kröfuna sem um getur í 104. gr. a í tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2013/36/ESB og samanlagða kröfu um eiginfjárauka fyrir skilaaðila á samstæðustigi skilasamstæðu ef skila­samstæðan fellur ekki undir þær kröfur samkvæmt þeirri tilskipun, með þeim aðlögunum sem leiðir af bókun 1 um altæka aðlögun við EES-samninginn, sbr. lög um Evrópska efnahagssvæðið, nr. 2/1993, þar sem bókunin er lögfest. Reglugerðin er birt á bls. 91–96 í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi Evrópu­sambandsins nr. 92 frá 20. desember 2023.

 

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 22. gr. a laga um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja, nr. 70/2020, öðlast þegar gildi.

 

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 18. október 2024.

 

F. h. r.

Guðrún Þorleifsdóttir.

Eggert Páll Ólason.


B deild - Útgáfud.: 18. október 2024