1. gr.
1. gr. auglýsingarinnar orðist svo:
Aukastöðugjald vegna brota á reglum um notkun stöðureita, skv. 86. gr. umferðarlaga nr. 77/2019, sbr. f-lið 1. mgr. 109. gr. sömu laga, skal vera 3.090 kr.
Veittur er 33% afsláttur ef greitt er í bankastofnun eða heimabanka innan þriggja virkra daga frá álagningu gjaldsins.
50% álag greiðist ef gjald hefur ekki verið greitt innan 14 daga frá álagningu.
2. gr.
2. gr. auglýsingarinnar orðist svo:
Stöðvunarbrotagjald vegna annarra stöðvunarbrota, skv. a–e-lið 1. mgr. 109. gr. umferðarlaga nr. 77/2019, skal vera 20.000 kr.
Veittur er 33% afsláttur ef greitt er í bankastofnun eða heimabanka innan þriggja virkra daga frá álagningu gjaldsins.
3. gr.
Breyting þessi sem bæjarstjórn Akureyrarbæjar hefur samþykkt staðfestist hér með samkvæmt 5. mgr. 109. gr. umferðarlaga nr. 77/2019 með síðari breytingum, sbr. reglur um álagningu og innheimtu gjalds vegna stöðvunarbrota nr. 104/1988 með síðari breytingum.
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 19. apríl 2021.
F. h. r.
Ragnhildur Hjaltadóttir.
|