1. gr.
Við 1. gr. reglugerðarinnar bætast þrír nýir töluliðir 14., 15. og 16 tölul., svohljóðandi:
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/589 frá 10. janúar 2023 um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) 2016/127 að því er varðar kröfur um prótín í ungbarnablöndum og stoðblöndum sem eru framleiddar úr vatnsrofsmyndefnum prótína. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 221/2023, frá 22. september 2023. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 79, frá 2. nóvember 2023, bls. 452.
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/2182 frá 30. ágúst 2022 um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) 2017/1798 að því er varðar kröfur um lípíð og magnesíum í þyngdarstjórnunarfæði í stað alls annars fæðis. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 222/2023, frá 22. september 2023. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 79, frá 2. nóvember 2023, bls. 458.
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/439 frá 16. desember 2022 um breytingu á viðaukanum við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 609/2013 til að heimila notkun á nikótínamíðríbósíðklóríði sem níasíngjafa í matvæli sem eru notuð í sérstökum, læknisfræðilegum tilgangi og þyngdarstjórnunarfæði í stað alls annars fæðis. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 230/2023, frá 22. september 2023. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 79, frá 2. nóvember 2023, bls. 691.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Matvælaráðuneytinu, 4. desember 2023.
Svandís Svavarsdóttir.
|