1. gr.
Nýr málsliður bætist við 5. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar, svohljóðandi: Grímuskylda skv. 1. mgr. 4. gr. á ekki við um börn sem fædd eru 2011 og síðar.
2. gr.
Á undan orðunum „og spilasölum“ í 2. mgr. 5. gr. reglugerðarinnar kemur: spilakössum.
3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 12. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997, tekur þegar gildi.
Heilbrigðisráðuneytinu, 1. nóvember 2020.
F. h. r.
Ásta Valdimarsdóttir.
|