Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1037/2017

Nr. 1037/2017 16. nóvember 2017

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 277/2008 um aðgerðir til að tryggja flugöryggi og skrá yfir flugrekendur er ekki uppfylla viðeigandi öryggiskröfur.

1. gr.

Við 3. tl. 4. gr. reglugerðarinnar bætist nýir stafliðir, þ og æ sem orðast svo:

  þ. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/2214 frá 8. desember 2016, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 184/2017.
  æ. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2017/830 frá 15. maí 2017, sbr. ákvörðun sameigin­legu EES-nefndarinnar, sbr. ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar nr. 98/2017.

2. gr.

Viðaukar A og B við reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/963 frá 16. júní 2016 um breytingu á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 474/2006 frá 22. mars 2006 um að stofna skrá Bandalagsins yfir flugrekendur sem bannað er að stunda flugrekstur innan Bandalagsins sem um getur í II. kafla reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 2111/2005 í fylgiskjali IV við reglugerðina falla niður.

3. gr.

Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi eftirtaldar reglugerðir sem teknar hafa verið upp í EES‑samninginn:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/830 frá 15. maí 2017 um breytingu á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 474/2006 frá 22. mars 2006 um að stofna skrá Bandalagsins yfir flugrekendur sem bannað er að stunda flugrekstur innan Bandalagsins sem um getur í II. kafla reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 2111/2005, með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka EES-samningsins, bókun 1, um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans, sbr. ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar nr. 184/2017 frá 22. september 2017. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 67, 19. október 2017, bls. 644.
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/2214 frá 8. desember 2016 um breytingu á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 474/2006 frá 22. mars 2006 um að stofna skrá Bandalagsins yfir flugrekendur sem bannað er að stunda flugrekstur innan Bandalagsins sem um getur í II. kafla reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 2111/2005, með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka EES-samningsins, bókun 1, um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans, sbr. ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar nr. 98/2017 frá 5. maí 2017. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópu­sambandsins nr. 31, 18. maí 2017, bls. 742.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 2. mgr. 3. gr., 1. mgr. 4. gr. og 5. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 16. nóvember 2017.

F. h. r.

Sigurbergur Björnsson.

Gunnar Örn Indriðason.


B deild - Útgáfud.: 30. nóvember 2017