1. gr. Fiskistofa leggur á veiðigjald. Á fiskveiðiárinu 1. september 2006 til 31. ágúst 2007 skulu eigendur skipa greiða kr. 0,91 fyrir hvert þorskígildiskílógramm úthlutaðra veiðiheimilda eða landaðs afla einstakra tegunda. 2. gr. Þorskígildisstuðlar fyrir fiskveiðiárið 1. september 2006 til 31. ágúst 2007 eru þessir: Tegund | Stuðlar | Tegund | Stuðlar | Tegund | Stuðlar | Þorskur | 1,00 | Loðna | 0,10 | Öfugkjafta | 0,35 | Ýsa | 0,81 | Humar (slitinn) | 6,42 | Makríll | 0,17 | Ufsi | 0,42 | Innfjarðarækja | 0,36 | Geirnyt | 0,11 | Karfi | 0,69 | Úthafsrækja | 0,67 | Smokkfiskur | 0,35 | Langa | 0,60 | Litli karfi | 0,38 | Beitukóngur | 0,28 | Keila | 0,37 | Lýsa | 0,44 | Kúskel | 0,02 | Steinbítur | 0,71 | Blálanga | 0,55 | Búrfiskur | 1,38 | Skötuselur | 1,80 | Sléttilanghali | 0,17 | Snarphali | 0,20 | Grálúða | 1,98 | Tindaskata | 0,12 | Náskata | 0,18 | Skarkoli | 1,18 | Hlýri | 0,74 | Sandhverfa | 3,58 | Sólkoli | 1,43 | Skata | 0,60 | Urrari | 0,36 | Langlúra | 0,59 | Háfur | 0,96 | Stinglax | 0,41 | Sandkoli | 0,48 | Hákarl | 0,03 | Hvítskata | 0,17 | Skrápflúra | 0,46 | Hámeri | 4,10 | Sæbjúga | 0,25 | Annar flatfiskur | 0,65 | Gulllax | 0,44 | Rauðmagi | 0,14 | Síld | 0,13 | Lúða | 3,36 | Grásleppa | 0,67 |
Þorskígildisstuðlar fyrir stofna sem úthlutað er úr miðað við almanaksárið 2007 eru eftirfarandi: Tegund | Stuðlar | Norsk-íslensk síld | 0,23 | Norður-Íshafsþorskur | 1,00 | Kolmunni | 0,05 | Úthafskarfi | 0,73 | Rækja á Flæmingjagrunni | 0,75 |
Ofangreindir stuðlar gilda við álagningu veiðigjalds, sbr. 22. gr. laga nr. 38/1990 um stjórn fiskveiða með síðari breytingum. 3. gr. Auglýsing þessi er gefin út með stoð í lögum nr. 38, 15. maí 1990, um stjórn fiskveiða með síðari breytingum og kemur í stað auglýsingar nr. 683, 4. ágúst 2006. Auglýsingin öðlast þegar gildi, kemur til framkvæmda 1. september 2006 og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli. Sjávarútvegsráðuneytinu, 10. ágúst 2006. F. h. r. Arndís Á. Steinþórsdóttir. Árni Múli Jónasson. |