Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1296/2022

Nr. 1296/2022 29. nóvember 2022

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 277/2008 um aðgerðir til að tryggja flugöryggi og skrá yfir flugrekendur er ekki uppfylla viðeigandi öryggiskröfur.

1. gr.

Við c-lið 4. gr. reglugerðarinnar bætist nýir töluliðir, 38 og 39, sem orðast svo:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/2070 frá 25. nóvember 2021 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 474/2006 að því er varðar skrá yfir flugrekendur sem bannað er að stunda flugrekstur eða sæta rekstrartakmörkunum innan Sambandsins.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/594 frá 8. apríl 2022 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 474/2006 að því er varðar skrá yfir flugrekendur sem bannað er að stunda flugrekstur eða sæta rekstrartakmörkunum innan Sambandsins.

 

2. gr.

Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi eftirtaldar gerðir:

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/2070 frá 25. nóvember 2021 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 474/2006 að því er varðar skrá yfir flugrekendur sem bannað er að stunda flugrekstur eða sæta rekstrartakmörkunum innan Sambandsins, samkvæmt ákvörðun sam­eigin­legu EES-nefndarinnar nr. 195 frá 10. júní 2022. Framkvæmdarreglugerðin er birt í EES-við­bæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 47, frá 14. júlí 2022, bls. 130-150.

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/594 frá 8. apríl 2022 um breyt­ingu á reglugerð (EB) nr. 474/2006 að því er varðar skrá yfir flugrekendur sem bannað er að stunda flugrekstur eða sæta rekstrartakmörkunum innan Sambandsins, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 263/2022 frá 23. september 2022. Framkvæmdar­reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 72, frá 3. nóvember 2022, bls. 342-345.

 

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 3. mgr. 228. gr. laga um loftferðir nr. 80/2022, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi.

 

Innviðaráðuneytinu, 29. nóvember 2022.

 

F. h. r.

Ólafur Kr. Hjörleifsson.

Valgerður B. Eggertsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 30. nóvember 2022