Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 537/2018

Nr. 537/2018 8. maí 2018

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 438/2012 um sameiginlegar reglur um flæðisstjórnun flugumferðar.

1. gr.

Við 4. gr. reglugerðarinnar bætist nýr stafliður, c, sem orðast svo:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/2159 frá 20. nóvember 2017 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 255/2010 að því er varðar tilteknar tilvísanir í ákvæði Alþjóðaflugmálastofnunarinnar, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 67 frá 23. mars 2018. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðinda Evrópusambandsins nr. 25 frá 19. apríl 2018, bls. 306.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 57. gr. a, sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 8. maí 2018.

F. h. r.

Sigurbergur Björnsson.

Gunnar Örn Indriðason.


B deild - Útgáfud.: 29. maí 2018