Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 936/2023

Nr. 936/2023 29. ágúst 2023

SAMÞYKKT
um fiðurfé utan skipulagðra landbúnaðarsvæða í Múlaþingi.

1. gr.

Samþykkt þessi er sett til að tryggja skipulag, stjórn og eftirlit með haldi á fiðurfénaði í þéttbýli í Múlaþingi, koma í veg fyrir ágang á lóðir íbúa og vernda gróður í sveitarfélaginu. Umhverfis- og framkvæmdaráð fer með búfjárhaldsmál, og þar með haldi á fiðurfénaði, í umboði sveitarstjórnar. Fiðurfé er samkvæmt þessari samþykkt allir fuglar af ættbálkum hænsnfugla (galliformes) og and­fugla (anseriformes). Jafnframt nær samþykktin yfir dúfnahald.

 

2. gr.

Fuglahald er heimilt innan þéttbýlis í Múlaþingi að fengnu leyfi sveitarfélagsins og með þeim tak­mörkunum sem greinir í samþykkt þessari. Þéttbýli er skilgreint nánar í aðalskipulagi sveitar­félagsins.

 

3. gr.

Sá sem stunda vill fuglahald í þéttbýli sbr. 2. gr., skal senda skriflega umsókn til sveitarfélagsins á þar til gerðu eyðublaði. Í umsókninni skal gera grein fyrir fjölda fugla, sem halda skal, tegund, hvaða húsnæði sé til umráða og öðru sem máli kann að skipta um öryggi þeirra og vörslu. Verk­efnastjóri umhverfismála tekur við og afgreiðir umsóknirnar. Hann hefur einnig umboð til að taka á brotum á samþykkt þessari.

 

4. gr.

Heimilt er hverjum leyfishafa að halda allt að 7 fugla hverju sinni. Þó eru hanar með öllu bannaðir utan lögbýla. Aðeins skal veita leyfi til fuglahalds á heimili umsækjanda. Óheimilt er að halda fiðurfénað inni í íbúðarhúsnæði. Aðeins er heimilt að veita eitt leyfi til fuglahalds á hverja sérskráða íbúð með fastanúmeri.

Í sérbýli skal fylgja umsókn um leyfi til fuglahalds skriflegt samþykki næstu nágranna. Fiður­fénaður er óheimill í fjöleignarhúsum nema fyrir liggi skriflegt leyfi annarra íbúa hússins, sem og samþykki næstu nágranna, sbr. 2. mgr.

Fiðurfénaður er óheimill í húsnæði í eigu sveitarfélagsins.

 

5. gr.

Allar lögskipaðar læknismeðferðir á fiðurfénaði skulu framkvæmdar á ábyrgð og kostnað leyfis­hafa.

 

6. gr.

Leyfishafi ber einn ábyrgð á því að hann hafi fóður fyrir fiðurfénað sinn og skal hann tryggja góða meðferð þeirra og fylgja lögum um velferð dýra nr. 55/2013 og reglugerð nr. 88/2022 um velferð alifugla.

 

7. gr.

Lausaganga fiðurfénaðs er bönnuð innan þéttbýlismarka Múlaþings. Enn fremur geta þeir sem fyrir ágangi verða látið handsama fuglana og skulu þeir tilkynna verkstjóra þjónustumiðstöðvar um það tafarlaust. Skal hann strax kanna hver er réttur eigandi að hinum handsömuðu fuglum og tilkynna honum þegar í stað hvar þeir eru. Hafi leyfishafi fuglanna ekki fundist eða sinnt fyrirmælum um að sækja þá innan tveggja sólarhringa frá tilkynningu er verkstjóra þjónustumiðstöðvarinnar heimilt að láta aflífa þá á kostnað eiganda.

 

8. gr.

Byggingarleyfi fyrir fuglakofa er háð gildandi ákvæðum byggingarreglugerðar á hverjum tíma.

 

9. gr.

Telji verkefnastjóri umhverfismála að umsækjandi uppfylli þau skilyrði sem sett eru, skal hann gefa út leyfi til fuglahalds í þéttbýli. Leyfisveiting skuldbindur þó Múlaþing aldrei til að útvega leyfis­hafa aðstöðu til fuglahaldsins. Leyfi til að halda fiðurfénað er veitt til ákveðins tíma en er upp­segjan­legt með eins árs fyrirvara miðað við 15. júní ár hvert. Leyfið er háð gildandi lögum og reglum um búfjárhald eins og þær eru á hverjum tíma og er gefið út á nafn og er ekki framseljanlegt. Sá sem fær leyfi til fuglahalds samkvæmt samþykkt þessari skal hafa fiðurfénaðinn í öruggri vörslu og ber hann að öllu leyti ábyrgð á honum.

 

10. gr.

Sveitarstjórn er heimilt að innheimta áfallinn kostnað vegna framfylgdar á samþykkt þessari úr hendi leyfishafa samkvæmt gjaldskrá sem sveitarfélagið setur skv. 59. gr. laga nr. 7/1998 um holl­ustu­hætti og mengunarvarir. Í gjaldskránni skal ákveðið handsömunar- og vörslugjald vegna hand­sömunar fiðurfénaðs í vörslu sveitarfélagsins vegna brota á samþykkt þessari. Við ákvörðun gjalda skal tekið mið af þeim kostnaði sem leiðir af framkvæmd þessarar samþykktar.

 

11. gr.

Um brot gegn samþykkt þessari og um valdsvið, þvingunarúrræði, málsmeðferð, úrskurði og viður­lög fer samkvæmt XVII., XVIII. og XIX. kafla laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunar­varnir.

 

12. gr.

Samþykkt þessi staðfestist hér með samkvæmt 59. gr laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og meng­unarvarnir, með síðari breytingum, til að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli. Frá sama tíma fellur úr gildi samþykkt nr. 1140/2014 um hænsnahald á Fljóts­dals­­héraði.

 

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 29. ágúst 2023.

 

F. h. r.

Íris Bjargmundsdóttir.

Trausti Ágúst Hermannsson.


B deild - Útgáfud.: 12. september 2023