1. gr. Heiti fræðasviðsins „heilbrigðisdeild“ fellur niður í reglunum í öllum tilvikum og heitið „heilbrigðisvísindasvið“ kemur í staðinn. 2. gr. Þriðji málsliður 2. töluliðar 1. gr. verður sem hér segir: | Hjúkrunarfræði I (6 ECTS ein.) | 20% | | Heimspeki (6 ECTS ein.) | 20% | | Líffærafræði I (4 ECTS ein.) | 15% | | Vinnulag í háskólanámi (6 ECTS ein.) | 20% | | Vefja- og frumulíffræði (8 ECTS ein.) | 25% |
3. gr. Reglur þessar, samþykktar af háskólaráði, eru settar á grundvelli laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla með síðari breytingu og reglna fyrir Háskólann á Akureyri nr. 387/2009 og öðlast gildi 15. ágúst 2010. Akureyri, 15. ágúst 2010. Stefán B. Sigurðsson rektor. Árún Kr. Sigurðardóttir, forseti heilbrigðisvísindasviðs. |