1. gr. Fiskistofa leggur á veiðigjald. Á fiskveiðiárinu 1. september 2010 til 31. ágúst 2011 skulu eigendur skipa greiða kr. 6,44 fyrir hvert þorskígildiskílógramm úthlutaðra veiðiheimilda eða landaðs afla einstakra tegunda. 2. gr. Þorskígildisstuðlar fyrir fiskveiðiárið 1. september 2010 til 31. ágúst 2011 eru þessir: Tegund | Stuðlar | Tegund | Stuðlar | Tegund | Stuðlar | Þorskur | 1,00 | Humar (slitinn) | 4,51 | Spærlingur | 0,09 | Ýsa | 0,95 | Innfjarðarækja | 0,58 | Trjónukrabbi | 0,09 | Ufsi | 0,64 | Úthafsrækja | 0,63 | Geirnyt | 0,35 | Karfi | 0,74 | Litli karfi | 0,49 | Smokkfiskur | 0,11 | Langa | 0,51 | Lýsa | 0,44 | Beitukóngur | 0,28 | Keila | 0,34 | Blálanga | 0,51 | Kúskel | 2,60 | Steinbítur | 0,87 | Slétti langhali | 0,27 | Blágóma | 0,14 | Skötuselur | 1,92 | Tindaskata | 0,06 | Búrfiskur | 0,37 | Grálúða | 2,21 | Hlýri | 0,97 | Snarphali | 0,35 | Skarkoli | 0,80 | Skata | 0,60 | Náskata | 0,20 | Sólkoli | 1,07 | Háfur | 0,75 | Sandhverfa | 3,32 | Langlúra | 0,60 | Hákarl | 0,04 | Urrari | 0,11 | Sandkoli | 0,24 | Hámeri | 1,39 | Stinglax | 0,49 | Skrápflúra | 0,34 | Gulllax | 0,47 | Ígulker | 0,35 | Annar flatfiskur | 0,26 | Lúða | 2,87 | Sæbjúga | 0,10 | Síld | 0,11 | Öfugkjafta | 0,28 | Rauðmagi | 0,47 | Loðna | 0,17 | Gulldepla | 0,09 | Grásleppa | 0,74 | Stóra brosma | 0,24 | Vogmær | 0,11 | Hvítskata | 0,18 |
Þorskígildisstuðlar vegna aflaheimilda sem miðast við almanaksárið 2011 eru þessi: Tegund | Stuðlar | Norsk-íslensk síld | 0,16 | Norður-Íshafsþorskur | 1,00 | Kolmunni | 0,13 | Úthafskarfi | 0,86 | Rækja á Flæmingjagrunni | 0,44 | Makríll | 0,14 |
Ofangreindir stuðlar gilda við álagningu veiðigjalds, sbr. 22. gr. laga nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða með síðari breytingum. 3. gr. Auglýsing þessi er gefin út með stoð í lögum nr. 116, 10. ágúst 2006, um stjórn fiskveiða með síðari breytingum. Auglýsingin öðlast þegar gildi, kemur til framkvæmda 1. september 2010 og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu 15. júlí 2010. Jón Bjarnason. Arndís Á. Steinþórsdóttir. |