1. gr.
Með vísan til 24. og 25. gr. laga um grunnskóla, nr. 91/2008, með áorðnum breytingum, staðfestir mennta- og barnamálaráðherra hér með eftirfarandi breytingar á aðalnámskrá grunnskóla:
Breytingar verða á greinasviðum með því að nýir kaflar 17. til 26., sem birtir eru sem fylgiskjal með auglýsingu þessari, koma í stað 17. til 27. kafla gildandi aðalnámskrár.
2. gr.
Breytingar þessar á aðalnámskrá grunnskóla öðlast þegar gildi og skulu vera komnar til framkvæmda við upphaf skólaárs 2025/2026.
Mennta- og barnamálaráðuneytinu, 17. október 2024.
Ásmundur Einar Daðason.
Anna Tryggvadóttir.
Fylgiskjal. (sjá PDF-skjal)
|