1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 4. mgr. 8. gr. samþykktarinnar:
Í stað orðanna „15 m“ kemur: 10 m.
2. gr.
Samþykkt þessi, sem hefur hlotið málsmeðferð samkvæmt ákvæðum 2. mgr. 8. gr. laga nr. 55/2003, um meðhöndlun úrgangs, sbr. 59. gr. laga nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir, var samþykkt af bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar 21. desember 2023. Samþykktin staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi.
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 15. febrúar 2024.
F. h. r.
Eva B. Sólan Hannesdóttir.
Trausti Ágúst Hermannsson.
|