1. gr.
Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist einn nýr töluliður svohljóðandi:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/2882 frá 11. nóvember 2024 um breytingu á V. og XIV. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/404 að því er varðar færslurnar fyrir Breska konungsríkið og Bandaríkin í skránum yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða svæði þeirra sem hafa heimild til að flytja inn sendingar af alifuglum, kímefnum úr alifuglum og nýju kjöti af alifuglum og veiðifuglum til Sambandsins.
2. gr.
Framkvæmdarreglugerðin sem nefndar eru í 1. gr. eru birtar á ensku í C-deild Stjórnartíðinda, sem fylgiskjal við auglýsingu nr. 59/2024.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum um matvæli, nr. 93/1995, lögum um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, nr. 22/1994 og lögum um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, nr. 25/1993.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Matvælaráðuneytinu, 20. nóvember 2024.
Bjarni Benediktsson.
|