1. gr.
Eftirfarandi breytingar eru gerðar á 1. gr. reglugerðarinnar:
- Nýr stafliður bætist við 1. tölul. 1. mgr., svohljóðandi:
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1256 frá 21. apríl 2021 um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) 2015/35 að því er varðar samþættingu áhættu tengda sjálfbærni í stjórnkerfum vátrygginga- og endurtryggingafélaga, sem birt er á bls. 310-313 í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 70 frá 27. október 2022.
- Ný málsgrein bætist við, svohljóðandi: Reglugerð skv. e-lið 1. tölul. 1. mgr. var tekin upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 138/2022 frá 29. apríl 2022 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 61 frá 22. september 2022, bls. 90.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 1. mgr. 50. gr. og 114. gr. laga um vátryggingastarfsemi, nr. 100/2016, öðlast þegar gildi.
Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 1. júní 2023.
F. h. r.
Guðrún Þorleifsdóttir.
|