Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 28/2020

Nr. 28/2020 8. janúar 2020

AUGLÝSING
frá ríkisskattstjóra um frest til að skila umsókn um lækkun á fyrirframgreiðslu þinggjalda á árinu 2020.

  1. Frestur til að skila umsóknum um lækkun á fyrirframgreiðslu ársins 2020, sbr. 5. gr. reglu­gerðar nr. 1227/2019, er til 31. maí 2020 vegna lögaðila. Umsóknir ásamt gögnum skulu því í síðasta lagi hafa verið sendar rafrænt á netfangið [email protected] fyrir lok umsóknar­frests.
  2. Forsendur fyrir lækkun fyrirframgreiðslunnar eru þær að skatt- eða gjaldstofnar vegna tekju­ársins 2019 séu a.m.k. 25% lægri en þeir stofnar sem fyrirframgreiðslan ákvarðast af, þ.e. tekjuárið 2018, og að álögð gjöld 2020 muni af þeim sökum að lágmarki verða 100.000 kr. lægri en við álagningu 2019.
  3. Umsækjanda ber að sýna fram á forsendur fyrir lækkun á fyrirframgreiðslu með fram­lagn­ingu skattframtals 2020 ásamt lögboðnum fylgiskjölum. Ársreikningar skulu fylgja skatt­framtöl­um rekstraraðila. Hafi umsækjandi skilað rafrænu framtali 2020 ásamt fylgigögnum er nægilegt að vísa til þess í umsókninni.
  4. Vakin er athygli á því að heimilt er að óska eftir endurupptöku á ákvörðun ríkisskattstjóra innan þriggja mánaða frá dagsetningu úrskurðar.
  5. Auglýsing þessi er sett samkvæmt heimild í 2. mgr. 6. gr. reglugerðar nr. 1227/2019 og tekur þegar gildi.

 

Reykjavík, 8. janúar 2020.

 

Snorri Olsen ríkisskattstjóri.


B deild - Útgáfud.: 22. janúar 2020