Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 550/2024

Nr. 550/2024 22. apríl 2024

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um þvingunaraðgerðir gegn alvarlegum mannréttindabrotum, nr. 466/2021.

1. gr.

Almenn ákvæði.

3. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar orðast svo: Í þeim gerðum sem vitnað er til í 10. gr., og öðrum ákvæðum reglugerðar þessarar, kemur fram um hvaða ályktun er að ræða, hverjar þær þvingunar­aðgerðir sem koma eiga til framkvæmda eru og gegn hverjum þær beinast, sbr. 2. mgr. 6. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna nr. 68/2023.

 

2. gr.

Þvingunaraðgerðir.

Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 10. gr. reglugerðarinnar, í réttri númeraröð:

  1.3 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2024/1025 frá 4. apríl 2024 um breytingu á ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2020/1999 um þvingunaraðgerðir gegn alvarlegum mannréttindabrotum, sbr. fylgiskjal 1.3.
  2.3 Reglugerð ráðsins (ESB) 2024/1034 frá 4. apríl 2024 um breytingu á reglugerð (ESB) 2020/1998 um þvingunaraðgerðir gegn alvarlegum mannréttindabrotum, sbr. fylgiskjal 2.3.

2. mgr. 10. gr. reglugerðarinnar orðast svo: Listar yfir aðila, hluti, tækni eða annað viðfang þvingunaraðgerða, sem vísað er til í framangreindum gerðum, eru birtir á vef Stjórnartíðinda Evrópu­sambandsins. Síðari breytingar og uppfærslur listanna öðlast sjálfkrafa gildi við birtingu á þeim vef, sbr. 3. mgr. 6. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna nr. 68/2023.

 

3. gr.

Viðurlög.

13. gr. reglugerðarinnar orðast svo: Hver sá sem brýtur gegn þvingunaraðgerðum skv. lögum nr. 68/2023 um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna skal sæta viðurlögum skv. 37. gr. laganna, nema þyngri viðurlög liggi við samkvæmt öðrum lögum.

 

4. gr.

Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 6. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunar­aðgerða og frystingu fjármuna nr. 68/2023, öðlast þegar gildi.

 

Utanríkisráðuneytinu, 22. apríl 2024.

 

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir.

Martin Eyjólfsson.

 

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)


B deild - Útgáfud.: 10. maí 2024