Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 442/2021

Nr. 442/2021 8. apríl 2021

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 1125/2014 um frammistöðukerfi fyrir flugleiðsöguþjónustu og starfsemi neta.

1. gr.

Við 4. gr. reglugerðarinnar bætist eftirfarandi málsgrein:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1627 frá 3. nóvember 2020 um sérstakar ráðstafanir fyrir þriðja viðmiðunartímabil (2020-2024) frammistöðu- og gjaldtökukerfis fyrir samevrópska loftrýmið, vegna COVID-19, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 224/2020 frá 11. desember 2020, birt í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi Evrópusambandsins nr. 19 frá 18. mars 2021, bls. 41-45.

 

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 6. mgr. 57. gr. a, sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

 

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 8. apríl 2021.

 

F. h. r.

Ólafur Kr. Hjörleifsson.

Valgerður B. Eggertsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 26. apríl 2021