Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 617/2024

Nr. 617/2024 17. maí 2024

REGLUGERÐ
um (35.) breytingu á reglugerð nr. 978/2011 um gildistöku reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1333/2008 um aukefni í matvælum.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í II. kafla I. viðauka og XII. kafla II. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. og II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli eftirtalinna ákvarðana sameiginlegu EES-nefndar­innar öðlast eftirtaldar ESB-gerðir gildi hér á landi:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/2379 um breytingu á II. viðauka við reglu­gerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1333/2008 og viðaukanum við reglugerð framkvæmda­stjórnarinnar (ESB) nr. 231/2012 að því er varðar matvælaaukefnið sterýltartrat (E 483). Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 50/2024, frá 15. mars 2024. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi Evrópusambandsins nr. 34, frá 25. mars 2024, bls. 594.
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/2108 um breytingu á II. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1333/2008 og viðaukanum við reglugerð framkvæmda­stjórnarinnar (ESB) nr. 231/2012 að því er varðar matvælaaukefnin nítrít (E 249–250) og nítröt (E 251–252). Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 50/2024, frá 15. mars 2024. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 34, frá 25. apríl 2024, bls. 597.

 

2. gr.

Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.

 

3. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a – 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.

 

4. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a. laga nr. 93/1995 um matvæli.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

 

Matvælaráðuneytinu, 17. maí 2024.

 

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir.

Emilía Madeleine Heenen.


B deild - Útgáfud.: 29. maí 2024