Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 530/2023

Nr. 530/2023 16. maí 2023

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 1077/2010 um flutning á hættulegum farmi á landi.

1. gr.

Við 2. mgr. 50. gr. reglugerðarinnar bætist nýr stafliður, k-liður, svohljóðandi:

  1. Framseld tilskipun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/2407 frá 20. september 2022 um breytingu á viðaukunum við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2008/68/EB í því skyni að laga viðaukana að framförum á sviði vísinda og tækni, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndar­innar nr. 64/2023, 17. mars 2023, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 30 frá 20. apríl 2023, bls. 428-429.

 

2. gr.

Lagastoð og gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 4. mgr. 81. gr. umferðarlaga nr. 77/2019, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

 

Innviðaráðuneytinu, 16. maí 2023.

 

F. h. r.

Valgerður B. Eggertsdóttir.

Gauti Daðason.


B deild - Útgáfud.: 1. júní 2023