1. gr.
Í stað orðanna „auglýsir eftir umsóknum um styrki fjórum sinnum á ári“ í 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglnanna kemur: auglýsir eftir umsóknum um styrki þrisvar sinnum á ári.
2. gr.
1. málsl. 5. gr. reglnanna orðast svo:
Úthlutað er úr Æskulýðssjóði þrisvar sinnum á ári: 15. mars, 15. júní og 15. október.
3. gr.
Reglur þessar eru settar skv. 9. gr. æskulýðslaga, nr. 70/2007 og öðlast þegar gildi.
Mennta- og menningarmálaráðuneytinu, 9. febrúar 2016.
Illugi Gunnarsson.
Ásta Magnúsdóttir.
|