Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 474/2022

Nr. 474/2022 26. apríl 2022

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 560/2009 um íslensk vegabréf, með síðari breytingum.

1. gr.

Á eftir 16. gr. reglugerðarinnar koma tvær nýjar greinar, svohljóðandi:

16. gr. a.

Utanríkisráðherra getur óskað eftir að Útlendingastofnun gefi út vegabréf til útlendings ef sérstakar ástæður eru fyrir hendi. Í því tilviki getur Útlendingastofnun veitt slíkt vegabréf til útlend­ings þótt viðkomandi uppfylli ekki kröfu 16. gr. um að hann sé löglega búsettur á Íslandi. Gildi vegabréfs fyrir útlending má binda við tiltekið svæði. Gildistími vegabréfs ræðst af þeim ástæðum sem gera útgáfu þess nauðsynlega en skal þó aldrei vera lengri en tólf mánuðir.

 

16. gr. b.

Utanríkisráðherra er heimilt að fela sendiskrifstofum Íslands og kjörræðismönnum að gefa út neyðarvegabréf til útlendings ef sérstakar ástæður eru fyrir hendi og að fengnu samþykki Útlend­ingastofnunar. Í slíkum tilvikum skal skráð skilmerkilega í neyðarvegabréfið að það sé útgefið til útlendings. Gildistími neyðarvegabréfs ræðst af þeim ástæðum sem gera útgáfu þess nauðsynlega en skal þó aldrei vera lengri en einn mánuður. Neyðarvegabréfi skal skila til lögreglu við komu til lands­ins eða til sendiskrifstofu erlendis.

 

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 3. mgr. 46. gr. laga um útlendinga, nr. 80/2016, og 11. gr. laga um vegabréf, nr. 136/1998, með síðari breytingum, öðlast gildi þegar í stað.

 

Dómsmálaráðuneytinu, 26. apríl 2022.

 

F. h. r.

Haukur Guðmundsson.

Ragna Bjarnadóttir.


B deild - Útgáfud.: 26. apríl 2022