1. gr.
Við 1. gr. reglugerðarinnar bætast tveir nýir töluliðir, 10. og 11. tölul., svohljóðandi:
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1040 frá 16. apríl 2021 um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) 2016/128 að því er varðar kröfur um varnarefni í matvælum sem eru notuð í sérstökum, læknisfræðilegum tilgangi sem eru þróuð til að fullnægja næringarþörfum ungbarna og smábarna. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 330/2021, frá 10. desember 2021. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 10, frá 17. febrúar 2022, bls. 699.
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1041 frá 16. apríl 2021 um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) 2016/127 að því er varðar kröfur um varnarefni í ungbarnablöndum og stoðblöndum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 330/2021, frá 10. desember 2021. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 10, frá 17. febrúar 2022, bls. 702.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995, um matvæli, með síðari breytingum.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Matvælaráðuneytinu, 3. mars 2022.
Svandís Svavarsdóttir.
|