1. gr.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli eftirtalinnar ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar öðlast eftirtalin ESB-gerð gildi hér á landi:
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/216 frá 11. janúar 2024 um breytingu á viðaukanum við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2018/1882 að því er varðar skráða sjúkdóma í lagardýrum og skrána yfir dýrategundir og hópa dýrategunda sem skapa töluverða áhættu á útbreiðslu þessara skráðu sjúkdóma. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 252/2024, frá 6. desember 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 10, frá 20. febrúar 2025, bls. 409.
2. gr.
Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum reglugerðarinnar sé framfylgt í samræmi við lög um innflutning dýra, nr. 54/1990, lög um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, nr. 25/1993, lög um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr, nr. 66/1998, lög um varnir gegn fisksjúkdómum, nr. 60/2006 og lög um fiskeldi, nr. 71/2008.
3. gr.
Um þvingunarúrræði og viðurlög vísast til laga um innflutning dýra, nr. 54/1990, laga um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, nr. 25/1993 og laga um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr, nr. 66/1998.
4. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum um innflutning dýra, nr. 54/1990, lögum um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, nr. 25/1993, lögum um varnir gegn fisksjúkdómum, nr. 60/2006 og lögum um fiskeldi, nr. 71/2008.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Matvælaráðuneytinu, 27. febrúar 2025.
Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra.
|