1. gr.
Gildissvið.
Reglur þessar gilda um starfsemi innlendra vátryggingafélaga og starfsemi erlendra vátryggingafélaga hér á landi, sbr. 2. og 3. gr. laga nr. 100/2016, um vátryggingastarfsemi.
2. gr.
Upplýsingar um áhættulausan vaxtaferil fyrir viðeigandi gjaldmiðla.
Samkvæmt 1. mgr. 76. gr. laga nr. 100/2016, um vátryggingastarfsemi, skal vátryggingaskuld vera samtala besta mats á skuldbindingum og áhættuálagi. Reglur þessar eru settar til að innleiða framkvæmdarreglugerðir framkvæmdastjórnarinnar (ESB) þar sem fram koma tæknilegar upplýsingar um áhættulausan vaxtaferil fyrir viðeigandi gjaldmiðla samkvæmt 2. mgr. 76. gr. laga nr. 100/2016.
3. gr.
Innleiðing reglugerða.
Með reglum þessum öðlast eftirtaldar reglugerðir gildi hér á landi:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1964 frá 11. nóvember 2021 um tæknilegar upplýsingar fyrir útreikning á vátryggingaskuld og kjarnagjaldþoli vegna gagnaskila með viðmiðunardagsetningar frá 30. september 2021 til 30. desember 2021 í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/138/EB um stofnun og rekstur fyrirtækja á sviði vátrygginga og endurtrygginga, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 11/2022 frá 4. febrúar 2022.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/186 frá 10. febrúar 2022 um tæknilegar upplýsingar fyrir útreikning á vátryggingaskuld og kjarnagjaldþoli vegna gagnaskila með viðmiðunardagsetningar frá 31. desember 2021 til 30. mars 2022 í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/138/EB um stofnun og rekstur fyrirtækja á sviði vátrygginga og endurtrygginga, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 74/2022 frá 18. mars 2022.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/732 frá 12. maí 2022 um tæknilegar upplýsingar fyrir útreikning á vátryggingaskuld og kjarnagjaldþoli vegna skýrslugjafar með viðmiðunardagsetningar frá 31. mars 2022 til 29. júní 2022 í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/138/EB um stofnun og rekstur fyrirtækja á sviði vátrygginga og endurtrygginga, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 211/2022 frá 8. júlí 2022.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/1384 frá 8. ágúst 2022 um tæknilegar upplýsingar fyrir útreikning á vátryggingaskuld og kjarnagjaldþoli vegna skýrslugjafar með viðmiðunardagsetningar frá 30. júní 2022 til 29. september 2022 í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/138/EB um stofnun og rekstur fyrirtækja á sviði vátrygginga og endurtrygginga, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 246/2022 frá 23. september 2022.
Með vísan til heimildar 1. mgr. 78. gr. laga nr. 100/2016 vísar Seðlabanki Íslands til birtingar enskrar útgáfu af framkvæmdarreglugerðum framkvæmdastjórnarinnar (ESB) í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins (e. Official Journal of the European Union):
- OJ, deild L, nr. 400, 12. nóvember 2021, bls. 52-147;
- OJ, deild L, nr. 30, 11. febrúar 2022, bls. 7-101;
- OJ, deild L, nr. 136, 13. maí 2022, bls. 8-101;
- OJ, deild L, nr. 207, 9. ágúst 2022, bls. 24-114.
4. gr.
Gildistaka.
Reglur þessar, sem settar eru með heimild í 1. mgr. 78. gr. laga nr. 100/2016, um vátryggingastarfsemi, öðlast þegar gildi.
Seðlabanka Íslands, 19. desember 2022.
|
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri. |
Rannveig Júníusdóttir framkvæmdastjóri. |
|