1. gr.
Fyrir yfirferð og samþykkt aðaluppdrátta og fylgiskjala þeirra, sem gerðir eru vegna nýbygginga, viðbygginga og breytinga á eldri byggingum í umdæmi Fjallabyggðar, skal byggingarfulltrúinn í Fjallabyggð í umboði bæjarstjórnar innheimta byggingarleyfisgjöld samkvæmt gjaldskrá þessari.
2. gr.
Byggingarleyfisgjöld.
Gjöldin miðast við eina yfirferð aðaluppdrátta. Innifalið er byggingarleyfi, útmæling og hæðarsetning, byggingareftirlit, lögbundnar úttektir, fokheldisvottorð og vottorð um lokaúttekt;
Tegund byggingar |
kr./m³ |
Athugasemdir |
A |
Íbúðarhúsnæði |
115 |
Gjald þó ekki lægra en kr. 125.200 |
B |
Iðnaðarhúsnæði |
115 |
Gjald þó ekki lægra en kr. 168.000 |
C |
Verslun og þjónusta |
115 |
Gjald þó ekki lægra en kr. 168.000 |
D |
Sérhæfðar byggingar |
115 |
Gjald þó ekki lægra en kr. 202.400 |
E |
Frístundahús |
115 |
Gjald þó ekki lægra en kr. 101.700 |
F |
Aðrar byggingar en tilgreindar í liðum A-E |
115 |
Gjald þó ekki lægra en kr. 101.700 |
G |
Stækkun húsnæðis/viðbyggingar o.þ.h. |
115 |
Gjald þó ekki lægra en kr. 65.000 |
H |
Niðurrif húsa |
0 |
Fast gjald kr. 11.800 |
I |
Endurnýjun eldra byggingarleyfis |
0 |
Fast gjald kr. 11.800 |
J |
Umsýslugjald vegna minni grenndarkynningar |
0 |
Fast gjald kr. 29.800 |
K |
Umsýslugjald vegna stærri grenndarkynningar |
0 |
Fast gjald kr. 119.700 |
3. gr.
Meginreglur vegna vinnu við deiliskipulag.
Gjaldskráin byggir á þeirri meginreglu að aðili sem óskar eftir heimild til gerðar nýs deiliskipulags eða breytingu á deiliskipulagi skuli greiða þann kostnað sem vinnan hefur í för með sér. Í því felst að umsækjandi greiðir kostnað vegna nýrra uppdrátta, breytinga á uppdráttum, auglýsinga og kynninga vegna málsins. Skipulags- og umhverfisnefnd getur ákveðið að falla frá gjaldtöku ef skipulagsvinna á vegum sveitarfélagsins er yfirstandandi eða fyrirhuguð á svæðinu eða skipulagsáætlun þarfnast breytinga af öðrum ástæðum, enda hafi það ekki í för með sér viðbótarkostnað fyrir sveitarfélagið. Gjaldskráin er gerð með vísun í skipulagslög nr. 123/2010.
Kostnaður vegna deiliskipulags og deiliskipulagsbreytinga:
Nýtt deiliskipulag, sbr. 2. mgr. 38. gr. |
Aðkeypt vinna á vegum umsækjanda |
Veruleg breyting á deiliskipulagsuppdrætti, sbr. 1. mgr.43. gr |
Aðkeypt vinna á vegum umsækjanda |
Óveruleg breyting á deiliskipulagsuppdrætti, sbr. 2. mgr. 43. gr. |
Aðkeypt vinna á vegum umsækjanda |
Umsýslu- og auglýsingakostnaður vegna nýs deiliskipulags, sbr. 2. mgr. 38. gr. |
206.700 kr. |
Umsýslu- og auglýsingakostnaður vegna verulegra breytinga, sbr. 1. mgr. 43. gr. |
159.000 kr. |
Umsýslu- og auglýsingakostnaður vegna óverulegra breytinga, sbr. 2. mgr. 43. gr. með grenndarkynningu |
90.100 kr. |
Umsýslu- og auglýsingakostnaður vegna óverulegra breytinga, sbr. 3. mgr. 44. gr. án grenndarkynningar |
58.300 kr. |
4. gr.
Rúmmetragjald samkvæmt 2. gr. skal reikna af brúttórúmmáli, sbr. ákvæði ÍST 50, án svala og C rýma. Rúmmetra skal námunda í heilan rúmmetra samkvæmt almennum reiknireglum.
5. gr.
Byggingarfulltrúi annast innheimtu byggingarleyfisgjalda samkvæmt gjaldskrá þessari.
6. gr.
Gjalddagi lágmarksgjalds er við móttöku byggingarleyfisumsóknar. Gjalddagi rúmmetragjalds er fyrir útgáfu byggingarleyfis. Byggingarfulltrúa er óheimil útgáfa byggingarleyfis, eða takmarkaðs byggingarleyfis, fyrr en byggingarleyfisgjald hefur verið greitt.
7. gr.
Byggingarleyfisgjald verður ekki endurgreitt falli byggingarleyfishafi frá notkun leyfisins eða það fellur úr gildi.
8. gr.
Fyrir þjónustu sem veitt er af hálfu byggingarfulltrúa í umdæmi Fjallabyggðar, skal byggingarfulltrúinn í Fjallabyggð í umboði bæjarstjórnar innheimta þjónustugjöld samkvæmt gjaldskrá þessari.
9. gr.
Afgreiðslu- og þjónustugjöld.
Fyrir ýmsa þjónustu sem byggingarfulltrúi veitir greiðast eftirfarandi gjöld:
|
Tegund þjónustu: |
Gjald kr.: |
1. |
Afgreiðslugjald, fast gjald á aðra liði en um getur í 2. og 8. gr. |
|
|
Gjaldið greiðist fyrir hverja einstaka afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar |
2.960 |
2. |
Stöðuleyfi, árgjald sem greiðist einu sinni á ári. |
|
|
a) Hjólhýsi o.þ.h. |
34.200 |
|
b) Gámar: |
|
|
upp að 20 fet að stærð |
34.200 |
|
40 fet að stærð |
66.600 |
3. |
Lóðarúthlutunargjald, óendurkræft þó lóðinni sé skilað til sveitarfélagsins |
30.400 |
4. |
Eignarskiptalýsingar, hver umfjöllun |
12.000 |
5. |
Vottorð vegna vínveitingaleyfa |
12.000 |
6. |
Fyrir húsaleiguúttekt |
12.000 |
7. |
Fyrir úttekt á verkstöðu vegna lánveitingar |
12.000 |
8. |
Útprentun á A2 |
275 |
9. |
Útprentun á A3 |
140 |
10. |
Útprentun á A4 |
85 |
11. |
Nýr lóðarleigusamningur |
60.900 |
12. |
Endurnýjun lóðarleigusamnings |
24.300 |
13. |
Breytingar á lóðarblaði eða gerð nýs lóðarblaðs |
24.300 |
14. |
Endurskoðun aðaluppdráttar |
24.300 |
15. |
Minniháttar breytingar á innra skipulagi og útliti húsa |
24.300 |
16. |
Framkvæmdaleyfi |
85.400 |
17. |
Endurnýjun leyfis án breytinga |
18.000 |
10. gr.
Gjaldskrá þessa skal bæjarstjórn taka til endurskoðunar við gerð fjárhagsáætlunar ár hvert.
11. gr.
Gjaldskrá þessi er sett af bæjarstjórn Fjallabyggðar með heimild í 51. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010 ásamt 20. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast þegar gildi.
Gjöld samkvæmt gjaldskránni má innheimta með fjárnámi, sbr. 3. mgr. 53. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010. Frá sama tíma fellur úr gildi gjaldskrá byggingarfulltrúa Fjallabyggðar nr. 1504/2022.
Samþykkt í bæjarstjórn Fjallabyggðar 14. desember 2023.
Fjallabyggð, 15. desember 2023.
Sigríður Ingvarsdóttir bæjarstjóri.
|