1. gr.
Við 2. gr. reglugerðarinnar bætast tveir nýir töluliðir, 18.–19. tölul., svohljóðandi:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/1418 frá 30. júní 2023 um að veita heitinu „Pic Saint-Loup“ (VUT) vernd skv. 99. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 1308/2013. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 344/2023, frá 8. desember 2023. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 11, frá 1. febrúar 2024, bls. 638.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/1327 frá 23. júní 2023 um að veita heitinu „Canelli“ (VUT) vernd skv. 99. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 1308/2013. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 344/2023, frá 8. desember 2023. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 11, frá 1. febrúar 2023, bls. 637.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 40., sbr. 27. gr. laga nr. 130/2014 um vernd afurðarheita sem vísa til uppruna, landsvæðis eða hefðbundinnar sérstöðu, og 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli.
Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.
Matvælaráðuneytinu, 8. apríl 2024.
F. h. r.
Benedikt Árnason.
|