1. gr.
Þvingunaraðgerðir.
Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 2. gr. reglugerðar um þvingunaraðgerðir varðandi Úkraínu nr. 281/2014:
|
3.21 |
Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2017/1561 frá 14. september 2017 um breytingu á ákvörðun 2014/145/SSUÖ um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 3.21. |
|
4.24 |
Reglugerð ráðsins (ESB) 2017/1547 frá 14. september 2017 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 269/2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 4.24. |
|
4.25 |
Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2017/1549 frá 14. september 2017 um framkvæmd reglugerðar (ESB) nr. 269/2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 4.25. |
|
7.8 |
Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2017/2214 frá 30. nóvember 2017 um breytingu á ákvörðun 2014/512/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða Rússlands sem grafa undan stöðugleika í Úkraínu, sbr. fylgiskjal 7.8. |
|
7.9 |
Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2017/2426 frá 21. desember 2017 um breytingu á ákvörðun 2014/512/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða Rússlands sem grafa undan stöðugleika í Úkraínu, sbr. fylgiskjal 7.9. |
|
8.4 |
Reglugerð ráðsins (ESB) 2017/2212 frá 30. nóvember 2017 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 833/2014 um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða Rússlands sem grafa undan stöðugleika í Úkraínu, sbr. fylgiskjal 8.4. |
2. gr.
Gildistaka o.fl.
Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.
Utanríkisráðuneytinu, 10. janúar 2018.
Guðlaugur Þór Þórðarson.
Sturla Sigurjónsson.
Fylgiskjöl. (sjá PDF-skjal)
|