Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 32/2024

Nr. 32/2024 18. janúar 2024

REGLUGERÐ
um veiðar íslenskra skipa úr norsk-íslenska síldarstofninum.

1. gr.

Gildissvið.

Reglugerð þessi tekur til veiða íslenskra skipa á síld úr norsk-íslenska síldarstofninum í fiskveiði­landhelgi Íslands, fiskveiðilögsögu Færeyja, á veiðistjórnunarsvæði Norðaustur-Atlantshafs­fiskveiði­nefndarinnar (NEAFC) og í lögsögu Svalbarða.

Við veiðar í lögsögu Færeyja skal farið að reglum sem færeysk stjórnvöld setja um veiðarnar. Í lögsögu Svalbarða skal farið að reglum sem norsk stjórnvöld setja um veiðarnar, enda séu þær settar á grundvelli samningsins um Svalbarða frá 9. febrúar 1920 og í samræmi við ákvæði hans.

 

2. gr.

Aflamark.

Aðeins er þeim íslenskum fiskiskipum heimilt að stunda veiðar á norsk-íslenskri síld, sem hafa aflamark í norsk-íslenskri síld samkvæmt reglugerð um veiðar í atvinnuskyni.

Heimilt er hverju skipi að veiða allt að 5% umfram aflamark í norsk-íslenskri síld á viðkomandi almanaksári og dregst sá umframafli frá aflamarki þess á næsta almanaksári. Þá er heimilt að flytja allt að 10% af ónýttu aflamarki fiskiskips frá viðkomandi almanaksári til næsta almanaksárs. Flutn­ingsheimildir samkvæmt þessari grein eiga einnig við um aflaheimildir sem skip fá úthlutað af afla­magni sem dregið er frá upphaflegri úthlutun.

Við veiðar á norsk-íslenskri síld í færeyskri efnahagslögsögu má meðafli makríls ekki fara yfir 30% af síldarafla í hverri veiðiferð. Heildarmakrílafli íslenskra skipa í færeyskri efnahagslögsögu skal ekki fara yfir 1.300 tonn. Fiskistofa fylgist með afla þessum og tilkynnir ráðuneytinu hvenær líklegt megi telja að aflanum verði náð og tilkynnir ráðuneytið frá hvaða tíma óheimilt er að veiða makríl sem meðafla.

 

3. gr.

Sýnataka.

Sýni af norsk-íslenskri síld skulu tekin úr afla, a.m.k. eitt í hverri veiðiferð og skal skrá sýna­tökuna í afladagbók skipsins. Í hverju sýni skulu vera a.m.k. 50 stykki af norsk-íslenskri síld sem valin eru af handahófi. Sýnin skulu fryst um borð, rækilega merkt (staður, dagsetning og dýpi) og send Hafrannsókna­stofnun, rannsókna- og ráðgjafarstofnun hafs og vatna, í Hafnarfirði eða útibúum stofn­unarinnar að lokinni veiðiferð.

 

4. gr.

Búnaður.

Skipum sem stunda veiðar á norsk-íslenskri síld er óheimilt að vera með þannig útbúnað að mögu­legt sé að dæla úr tönkum skips undir yfirborði sjávar.

 

5. gr.

Fjarskiptabúnaður.

Fiskiskip sem stunda veiðar á samningssvæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC) skulu búin fjarskiptabúnaði sem sendir upplýsingar um staðsetningu, stefnu og hraða viðkomandi skips á klukkustundar fresti, með sjálfvirkum hætti, til sameiginlegrar eftirlitsstöðvar Land­helgis­gæslunnar og Fiskistofu, hér eftir nefnd eftirlitsstöðin, sem miðlar gögnum til hlutað­eigandi stofnana.

Óheimilt er að halda til veiða fyrr en starfsmenn eftirlitsstöðvarinnar hafa staðfest að fjarskipta­búnaður starfi eðlilega. Skulu sendingar samkvæmt framangreindu hefjast þegar viðkomandi skip lætur úr höfn og skal þeim ekki ljúka fyrr en skipið kemur til hafnar að nýju til löndunar afla.

Ef búnaður til sjálfvirkra sendinga bilar skal gert við hann svo fljótt sem mögulegt er, þó eigi síðar en að 30 dögum liðnum. Þar til búnaðurinn verður kominn í lag skal senda á annan hátt upp­lýsingar um staðsetningu skipsins á a.m.k. 4 klukkustunda fresti til eftirlitsstöðvarinnar.

 

6. gr.

Tilkynningar.

Um tilkynningar varðandi síldveiðar skv. þessari reglugerð, bæði innan íslenskrar fiskveiði­landhelgi og á alþjóðlegu hafsvæði, gilda ákvæði reglugerðar um veiðieftirlit á samningssvæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC). 

Um tilkynningar varðandi veiðar innan fiskveiðilögsögu Færeyja fer samkvæmt reglum sem færeysk stjórnvöld setja.

Um tilkynningar varðandi veiðar í lögsögu Svalbarða fer samkvæmt reglum sem norsk stjórn­völd setja enda séu þær settar á grundvelli samningsins um Svalbarða frá 9. febrúar 1920 og í sam­ræmi við ákvæði hans.

Eftir að skip hættir veiðum og í síðasta lagi fjórum klukkustundum áður en áætlað er að það komi til hafnar skal skipstjóri senda Fiskistofu tilkynningu á því formi sem Fiskistofa ákveður um áætlaðan afla skipsins, fyrirhugaðan löndunarstað og fyrirhugaðan löndunartíma. Heimilt er að víkja frá lág­marks­tíma t.d. ef fjarlægð milli fiskimiða og löndunarhafnar gefur tilefni til þess, enda sé þá tilkynning send um leið og veiðum er hætt.

 

7. gr.

Löndun og vigtun.

Síldarafla skal landað og hann veginn í íslenskri höfn. Um vigtun á norsk-íslenskum síldarafla gilda ákvæði reglugerðar um vigtun sjávarafla þó þannig að draga skal frá 2% af afla hvers skips vegna vatnsinnihalds í síld miðað við afla upp úr sjó fari afli til manneldis og reiknast það magn ekki til aflaheimilda þess.

Heimilt er þó með leyfi Fiskistofu að landa síldarafla og síldarafurðum í höfnum erlendis enda sé tryggt að eftirlit með vigtun aflans sé full­nægjandi að mati Fiskistofu. Jafnframt er heimilt að fengnu leyfi Fiskistofu að landa óvigtaðri síld um borð í vinnsluskip og flutningaskip, enda sé aflanum landað í íslenskri höfn og tryggt að skráning og vigtun sé fullnægjandi að mati Fiskistofu. Sækja skal um leyfi til löndunar síldar utan íslenskra hafna til Fiskistofu og skal skip­stjóri í umsókn tilgreina nákvæmlega hvar hann hyggst landa aflanum og áætlað magn síldar. Áætli skip komu til hafnar samningsaðila NEAFC með afla af samningssvæði NEAFC, hvort heldur til löndunar, umskip­unar eða til að leita þjónustu að öðru leyti, skal tilkynna þar til bæru yfirvaldi í viðkomandi ríki um komu skips til hafnar innan tiltekins frests sem ákveðinn er af hafnarríkinu í samræmi við reglur NEAFC um hafnarríkis­eftirlit og framkvæmd þess. Tilkynningar skal senda með raf­rænum hætti á heimasíðu NEAFC, (https://psc.neafc.org).

Þegar að löndun lokinni skal skipstjóri veiðiskips senda Fiskistofu endanlegar tölur um land­aðan afla og aflaverðmæti, staðfestar af móttakanda síldarinnar eða staðfest afrit af vigtarnótu, liggi það fyrir.

Heimilt er að miðla norsk-íslenskum síldarafla úr veiðarfærum skips á síldveiðum til annars skips með leyfi til síldveiða.

Landi skip frystum afurðum utan Íslands skal tilkynna um það í samræmi við ákvæði 5. kafla reglna Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC) um fiskveiðieftirlit og framkvæmd þess.

 

8. gr.

Viðurlög.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 151/1996, um fisk­veiðar utan lögsögu Íslands, laga nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar, laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, og ákvæðum laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða.

 

9. gr.

Lagaheimild og gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum 8., 11. og 16. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, 8., 9. og 14. gr. laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, 2., 9. og 30. gr. laga nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar og 3., 4., 6.-8., 18. og 19. gr. laga nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands. Reglugerðin öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi frá sama tíma reglugerð nr. 1604/2022 um stjórn veiða íslenskra skipa úr norsk-íslenska síldar­stofninum árið 2023.

 

Matvælaráðuneytinu, 18. janúar 2024.

 

Svandís Svavarsdóttir.

Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 19. janúar 2024