1. gr.
Sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar hefur ákveðið, sbr. 8. gr. samþykktar nr. 541/2000 um sorphirðu sveitarfélaga á Norðurlandi eystra, að leggja á árlegt sorphirðugjald í sveitarfélaginu eins og nánar er kveðið á um í gjaldskrá þessari.
Gjöldunum er ætlað að standa undir kostnaði við sorphirðu, sorpeyðingu og urðun sorps, ásamt kostnaði við rekstur móttöku- og grenndarstöðva.
2. gr.
Sorphirðugjald er lagt á hverja íbúð í lögsagnarumdæmi Dalvíkurbyggðar og er það innheimt með fasteignagjöldum með sömu gjalddögum og fasteignagjöld. Sorphirðugjaldið skiptist í fast gjald annars vegar og tunnugjald hins vegar. Frístundahús greiða einungis fast gjald sem innheimt er með sama hætti. Fasta gjaldinu er ætlað að standa straum af sameiginlegum kostnaði við sorphirðuna en tunnugjaldinu að standa undir kostnaði fyrir þjónustu við tæmingu á tunnum við heimahús.
Búrekstraraðilum er gefinn kostur á að greiða sérstaklega fyrir ílát undir búrekstrarúrgang, flutning hans og förgun samkvæmt gjaldskrá þessari. Þá er sérstakt gjald fyrir eyðingu á dýraleifum lagt á þá búfjáreigendur sem eru með skráðan bústofn samkvæmt búfjárskýrslum. Gjaldið tekur mið af því að það standi undir kostnaði við förgunina.
3. gr.
Sorphirðugjaldið og fyrirkomulag móttöku á gámasvæði á Dalvík er sem hér greinir:
- Íbúðir, sorphirðugjald, kr. 73.827 sem skiptist í fast gjald kr. 35.156 og tunnugjald kr. 38.671
- Frístundahús, fast gjald kr. 35.156.
- Í upphafi árs er úthlutað einu klippikorti á íbúð (16 klipp) og sumarhús (8 klipp) sem afhent eru í þjónustuveri Ráðhússins á Dalvík. Notendur þurfa að framvísa klippikortinu til að komast inn á endurvinnslustöðina á Dalvík. Leigjendur verða að nálgast kortin hjá leigusala eða að kaupa sér kort.
- Klippt verður fyrir gjaldskyldan úrgang á meðan tekið verður á móti ógjaldskyldum úrgangi án greiðslu. Skylt er að hafa klippikortið meðferðis þegar farið er á endurvinnslustöðina hvort sem um gjaldskyldan eða ógjaldskyldan úrgang er að ræða.
- Hvert klipp er fyrir 0,25 m³ sem samsvarar 240 l heimilistunnu. Ef kort klárast verður hægt að kaupa aukakort á kr. 17.363.
- Rekstraraðilar geta keypt klippikort í þjónustuveri á kr. 42.254 með 16 klipp fyrir 0,25 m³ alls 4 m³.
- Ekki er tekið gjald fyrir móttöku á flokkuðum úrgangi sem ber úrvinnslugjald frá íbúðum og sumarhúsum, svo sem: pappaumbúðum, plastumbúðum, hjólbörðum, ýmsum spilliefnum og úreltum ökutækjum.
4. gr.
Úrvinnslugjald vegna úrgangs frá búrekstri og dýraleifa er eftirfarandi:
- 240 lítra tunna fyrir almennan úrgang losuð tvisvar í mánuði 50.770 kr./ári.
- 360 lítra tunna fyrir almennan úrgang losuð tvisvar í mánuði 67.698 kr./ári.
- 240 lítra endurvinnslutunna losuð einu sinni í mánuði 25.141 kr./ári.
- Gjald fyrir eyðingu dýraleifa er lagt á heildarfjölda hverrar búfjártegundar samkvæmt búfjáreftirlitsskýrslu og er eftirfarandi:
Nautgripir |
1.527 kr./grip |
Sauðfé og geitfé |
280 kr./grip |
Hross |
599 kr./grip |
Grísir |
992 kr./grip |
5. gr.
Gjaldskrá þessi var samþykkt af sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar 19. nóvember 2024 samanber 23. gr. laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs og ákvæði 59. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998.
Gjaldskráin öðlast gildi 1. janúar 2025, um leið fellur gjaldskrá um sorphirðu í Dalvíkurbyggð nr. 1597/2023 úr gildi.
Samþykkt á fundi byggðarráðs Dalvíkurbyggðar 14. nóvember 2024.
Samþykkt á fundi sveitarstjórnar Dalvíkurbyggðar 19. nóvember 2024.
Dalvíkurbyggð, 16. desember 2024.
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sveitarstjóri.
|