Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 239/2025

Nr. 239/2025 21. febrúar 2025

GJALDSKRÁ
Brunavarna Dala, Reykhóla og Stranda og Slökkviliðs Dalabyggðar.

I. KAFLI

Almennt.

1. gr.

Verkefni Slökkviliðs Dalabyggðar, ákvarðast annars vegar af lögum um brunavarnir nr. 75/2000 og reglugerðum settum samkvæmt þeim og hins vegar af ákvæðum í stofnsamningi Brunavarna Dala, Reykhóla og Stranda bs. Af öðrum verkefnum skulu Brunavarnir Dala, Reykhóla og Stranda taka gjald samkvæmt gjaldskrá þessari.

 

2. gr.

Slökkvilið Dalabyggðar og Brunavarnir Dala, Reykhóla og Stranda bs. innheimta ferða- og uppihaldskostnað í samræmi við reglur ferðakostnaðarnefndar fjármála- og efnahagsráðuneytisins.

 

3. gr.

Slökkviliðsstjóra er heimilt að veita afslátt eða fella niður gjald vegna starfsemi ef verkefni telst þjóna almannahagsmunum s.s. vegna vatnsflutninga og/eða fellur að markmiðum Slökkviliðs Dala­byggðar. Falli ráðgjafarvinna undir ákvæði stjórnsýslulaga um upplýsinga- og leiðbeiningaskyldu skal sú vinna undanþegin gjaldi.

 

II. KAFLI

Lögbundin verkefni.

4. gr.

Sé ákvæðum 2. mgr. 29. gr. laga um brunavarnir nr. 75/2000, beitt skal eigandi eða umráða­maður mannvirkis eða lóðar bera kostnað samkvæmt gjaldskrá af eftirliti með því að farið hafi verið að kröfum um úrbætur samkvæmt 3. mgr. 29. gr. sömu laga. Einnig er heimilt að taka gjald fyrir öryggis- og lokaúttektir samkvæmt 3. mgr. 12. gr. sömu laga.

Fast tímagjald fyrir hverja byrjaða klukkustund útseldrar vinnu hvers starfsmanns slökkviliðs er 11.092 kr.

Fast tímagjald fyrir hverja byrjaða klukkustund útseldrar vinnu hvers starfsmanns Brunavarna Dala, Reykhóla og Stranda er 16.900 kr.

 

5. gr.

Öryggisvaktir á mannvirki.

Innheimt skal fyrir alla vinnu og akstur sem fellur til vegna öryggisvakta eftir að eiganda eða forráðamanni hefur verið tilkynnt ákvörðun slökkviliðsstjóra um að öryggisvakt skuli sett á viðkom­andi húseign. Á það jafnframt við um tilfallandi vaktir vegna tímabundinna viðburða þar sem fullum eldvörnum verður ekki við komið eða á meðan unnið er að úrbótum á þeim. Innheimt er að lág­marki 67.600 kr. fyrir hvern starfsmann Slökkviliðs Dalabyggðar sem sinnir verkefninu, auk 16.900 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram fjóra tíma fyrir hvern starfsmann sem sinnir verk­efninu. Heimild til gjaldtöku byggir á 3. mgr. 29. gr. og 30. gr. laga um brunavarnir.

 

6. gr.

Lokun mannvirkis.

Innheimt skal fyrir alla vinnu og akstur sem fellur til vegna lokunar mannvirkis eftir að eiganda eða forráðamanni hefur verið tilkynnt ákvörðun slökkviliðsstjóra um að loka skuli viðkomandi mann­virki. Innheimtar eru 16.900 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu. Þegar um útkall er að ræða utan tilskilins daglegs vinnutíma starfsmanns eru inn­heimtar 67.600 kr., auk 16.900 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram fjóra tíma fyrir hvern starfs­mann sem sinnir verkefninu. Heimild til gjaldtöku byggir á 3. mgr. 29. gr. og 32. gr. laga um brunavarnir.

 

7. gr.

Dagsektir.

Innheimta skal fyrir alla vinnu og akstur sem fellur til frá og með ákvörðun slökkviliðsstjóra um dagsektir og þar til kröfum um úrbætur á eldvörnum hefur verið fullnægt. Innheimtar eru 16.900 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu. Heimild til gjaldtöku byggir á 3. mgr. 29. gr. laga nr. 75/2000 um brunavarnir.

 

8. gr.

Öryggis- og lokaúttektir.

Innheimtar eru fyrir alla vinnu sem fellur til vegna öryggis- og lokaúttekta, að lágmarki 33.800 kr. Fyrir stærri úttektir skal að auki innheimta 16.900 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram tvo tíma fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu. Heimild til gjaldtöku byggir á 3. mgr. 12. gr. laga nr. 75/2000 um brunavarnir.

 

9. gr.

Eftirlit og eftirfylgni kröfugerðar.

Fyrir eftirlit og eftirfylgni kröfugerðar skal tekið fast gjald 16.900 kr. fyrir hverja byrjaða klukku­stund. Þegar um útkall er að ræða utan tilskilins daglegs vinnutíma starfsmanns eru inn­heimtar 67.600 kr., auk 16.900 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram fjóra tíma fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu. Heimild til gjaldtöku byggir á 3. mgr. 29. gr. laga nr. 75/2000 um brunavarnir.

 

10. gr.

Eftirfylgni útkalla vegna brunaviðvörunarkerfa.

Sé slökkvilið kallað út vegna boða frá sjálfvirku brunaviðvörunarkerfi án þess að eldur sé laus skal innheimta fyrir kostnaði af eftirliti með því að gerðar séu nauðsynlegar ráðstafanir til þess að koma í veg fyrir endurtekin falsboð.

Innheimt er fast gjald fyrir eina klukkustund, 16.900 kr. fyrir eftirlitið. Leiði það hins vegar til frekara eftirlits, vegna ítrekaðra falsboðana eða alvarlegra ágalla á brunaviðvörunum, fellur það undir eftirlit og eftirfylgni kröfugerðar, sbr. 9. gr. þessarar gjaldskrár og er þá innheimt samkvæmt því. Heimild til gjaldtöku byggir á 3. mgr. 29. gr. laga nr. 75/2000 um brunavarnir.

 

11. gr.

Umsagnir til opinberra stofnana vegna leyfisskyldrar starfsemi.

Af umsögnum til annarra opinberra stofnana vegna leyfisskyldrar starfsemi skal tekið fast gjald vegna þriggja klukkustunda vinnu, 50.700 kr. ef skoða þarf viðkomandi stað, en einnar klukku­stundar, 16.900 kr., ef umsögn er afgreidd án skoðunar á staðnum.

 

III. KAFLI

Önnur verkefni og þjónusta.

12. gr.

Slökkviliðið sinnir öðrum verkefnum sem eru ekki skilgreind sem verkefni liðsins samkvæmt lögum. Þessi verkefni verða þó að falla að tilgangi slökkviliðsins sem er að vinna að velferð íbúa sveitarfélagsins, séu þau ekki falin öðrum til úrlausnar í lögum né framkvæmd í samkeppni við aðra aðila. Því ber að taka gjald fyrir veitta þjónustu.

Fast tímagjald samkvæmt 4. gr. fyrir hverja byrjaða klukkustund útseldrar vinnu hvers starfs­manns er 11.092 kr. fyrir lögbundin verkefni. Að teknu tilliti til samkeppnissjónarmiða, þjálfunar, virkjunartíma og þess að þjónustan er aðgengileg allan sólarhringinn, allt árið er fast tímagjald fyrir hverja byrjaða klukkustund útseldrar vinnu hvers starfsmanns innheimt með 35% álagi. Fast tíma­gjald fyrir vinnu sem ekki er skilgreind sem verkefni liðsins samkvæmt lögum er því 14.974 kr. nema annað sé sérstaklega tekið fram. Þar sem um sérstakan viðbúnað er að ræða, sbr. 12.-14. gr. er að lágmarki innheimt fyrir fjóra starfsmenn í tvær klukkustundir, eða 119.796 kr.

 

13. gr.

Viðbúnaður vegna eldsvoða og mengunaróhappa.

Í 2. gr. laga um brunavarnir nr. 75/2000 kemur fram að lögin gilda um eldvarnir og slökkvistörf vegna eldsvoða og viðbúnað við mengunaróhöppum á landi nema kveðið sé á um annað í lögunum. Lögin gilda enn fremur um björgun á fastklemmdu fólki úr mannvirkjum og farartækjum með sér­hæfðum björgunarbúnaði. Lögin ná til starfsemi slökkviliða á landi, þ.m.t. slökkvistarfa í jarð­göngum, í skipum sem liggja í höfn og loftförum sem eru á jörðu niðri.

Slökkvistörf og viðbúnaður við mengunaróhöppum á sjó og í lofti falla hins vegar ekki undir lögin né heldur eldvarnir í skipum með haffærisskírteini, loftförum, almennum vinnuvélum, bif­reiðum eða öðrum vélknúnum ökutækjum. Slökkviliðsstjóri metur það hverju sinni hvort sinna skuli beiðnum um verkefni sem liggja fyrir utan gildissvið laganna.

Ef óskað er eftir því að slökkviliðið sinni verkefni sem fellur utan gildissviðs laganna skal lágmarks­gjaldtaka vera fyrir fjóra starfsmenn í tvær klukkustundir ef ekki liggja fyrir samningar um annað. Innheimta skal því að lágmarki 119.796 kr., auk 14.974 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram tvær fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu.

 

14. gr.

Viðbúnaður vegna upphreinsunar.

Upphreinsun sem fellur ekki undir skilgreiningu 3. gr. laga um brunavarnir nr. 75/2000 á meng­unaróhappi er sinnt af slökkviliði þótt ekki sé mælt fyrir um það í lögum um brunavarnir, meðan ekki eru aðrir þar til hæfir aðilar tiltækir að sinna verkefninu. Er það mat slökkviliðsstjóra hverju sinni hvenær sinna skal beiðnum um verkefni fyrir utan gildissvið laganna.

Ef óskað er eftir því að slökkvilið sinni verkefni sem fellur utan gildissviðs laganna skal lágmarks­gjaldtaka vera fyrir fjóra starfsmenn í tvær klukkustundir ef ekki liggja fyrir samningar um annað. Innheimta skal því að lágmarki 119.796 kr., auk 14.974 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram tvær fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu.

 

15. gr.

Viðbúnaður vegna verðmætabjörgunar og vatnsleka.

Verðmætabjörgun sem ekki er tilgreind í brunavarnalögum, t.d. vegna vatnsleka er sinnt af slökkvi­liði þótt ekki sé mælt fyrir um það í lögum um brunavarnir, meðan ekki eru aðrir þar til hæfir aðilar tiltækir til að sinna verkefninu. Er það mat slökkviliðsstjóra hverju sinni hvenær sinna skal beiðnum um verkefni fyrir utan gildissvið laganna.

Ef óskað er eftir því að slökkvilið sinni verkefni sem fellur utan gildissviðs laganna skal lágmarks­gjaldtaka vera fyrir fjóra starfsmenn í tvær klukkustundir ef ekki liggja fyrir samningar um annað. Innheimta skal því að lágmarki 119.796 kr., auk 14.974 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram tvær fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu.

 

16. gr.

Ráðgjafarþjónusta.

Falli ráðgjafarvinna undir ákvæði stjórnsýslulaga um upplýsinga- og leiðbeiningaskyldu skal sú vinna undanþegin gjaldi. Ef ráðgjafarvinna er fyrir utan ákvæði d-liðar 1. mgr. 12. gr. laga um bruna­varnir nr. 75/2000, um leiðbeiningar til fyrirtækja og stofnana eftir atvikum um hvaðeina er varðar brunavarnir og eldsvoða vegna viðkomandi starfsemi, er þjónustan gjaldskyld. Innheimtar eru 17.659 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu.

 

17. gr.

Tækjaleiga.

Tækjaleiga er ekki fyrirskrifuð í lögum um brunavarnir. Þó er eðlilegt að leigja tæki sem ekki er hægt að leigja hjá öðrum aðilum eða ef aðstæður kalla á skjóta notkun sem aðrir aðilar geta ekki boðið.

Verðlagning er ákveðin þannig að hún sé ávallt í það minnsta 35% hærri en leiga á svipuðum eða sambærilegum tækjum sem aðrir geta útvegað til að tryggja samkeppnissjónarmið. Oftast er um að ræða dælu eða vatnssugur, slökkvibíla, t.d. vegna kvikmyndagerðar eða einhvers atburðar sem kallar á slíkan búnað. Verðlagningu á tækjum skal endurskoða við hverja breytingu á gjaldskrá þessari.

Tæki Slökkviliðs Dalabyggðar skulu aðeins notuð af starfsmönnum slökkviliðsins. Innheimtar eru að lágmarki 59.898 kr. fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu, auk 14.974 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram fjóra tíma auk tækjaleigu.

 

18. gr.

Fylgd vegna sprengiefnaflutninga.

Sprengiefnafylgd er ekki áskilin í lögum um brunavarnir heldur er kveðið á um slíka fylgd í reglu­gerð um flutning á hættulegum farmi á landi þar sem lögreglustjóri gefur ekki heimild til flutninga nema í fylgd slökkviliðs. Innheimtar eru að lágmarki 59.898 kr. fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu, auk 14.974 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram fjóra tíma.

 

19. gr.

Annað.

Innheimt skal gjald fyrir aðra vinnu sem ekki er tilgreind hér og ekki er mælt fyrir um í lögum eða er í samræmi við stofnsamning Brunavarnir Dala, Reykhóla og Stranda Innheimtar eru fyrir tæki samkvæmt 16. gr. og að lágmarki 59.898 kr. fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu, auk 14.974 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram fjóra tíma.

Getur þetta átt við um þjónustu vegna sérstakra verkefna eins og kvikmyndatöku, móttöku erlendra þjóðhöfðingja eða sendimanna, menningarviðburða o.fl. þess háttar.

 

IV. KAFLI

Innheimta.

20. gr.

Skrifstofa Dalabyggðar annast innheimtu gjalda samkvæmt gjaldskrá þessari eða innheimtu­fyrirtæki sem verkefnið er falið samkvæmt samningi þar að lútandi. Um innheimtu gjalda skal fara eftir viðteknum venjum í innheimtu opinberra stofnana. Gjalddagi gjalda samkvæmt gjaldskránni er útgáfudagur reiknings og eindagi er 30 dögum síðar. Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga séu gjöldin ekki greidd á eindaga.

Gjöldum sem til eru komin vegna öryggis- og lokaúttekta sem og aðgerða til að knýja fram úrbætur samkvæmt lögum, sbr. 5. gr. til og með 10. gr. fylgir lögveð í viðkomandi fasteign eða lóð, sbr. 3. mgr. 12. gr. og 3. mgr. 29. gr. laga um brunavarnir nr. 75/2000.

 

V. KAFLI

Gildistaka, endurskoðunarákvæði og lagastoð.

21. gr.

Gjaldskrá þessi er samþykkt af sveitarstjórn Dalabyggðar þann 13. febrúar 2025 með heimild í 1. mgr. 92. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Verð í gjaldskrá þessari fylgja vísitölu neysluverðs 1. janúar ár hvert. Gjaldskráin öðlast gildi við birtingu í B-deild Stjórnartíðinda og fellur þá úr gildi gjaldskrá Slökkviliðs Dalabyggðar nr. 42/2024.

 

Dalabyggð, 21. febrúar 2025.

 

Björn Bjarki Þorsteinsson sveitarstjóri.


B deild - Útgáfud.: 7. mars 2025