Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 200/2025

Nr. 200/2025 11. febrúar 2025

REGLUR
um staðlað form fyrir framsetningu upplýsingaskjals um vátryggingarsamninga.

1. gr.

Gildissvið.

Reglur þessar gilda um dreifingu skaðatrygginga og þeirra persónutrygginga sem falla undir 20. gr. laga nr. 100/2016 um vátryggingastarfsemi, sbr. 10. gr. laga nr. 30/2004 um vátryggingar­samninga.

 

2. gr.

Staðlað form fyrir framsetningu upplýsingaskjals um vátryggingarsamninga.

Reglur þessar eru settar til að innleiða reglugerð (ESB) 2017/1469 frá 11. ágúst 2017 sem mælir fyrir um staðlað form fyrir framsetningu upplýsingaskjals um vátryggingarafurð. Skal ákvæðum hennar fylgt við samningu og miðlun staðlaðs upplýsingaskjals um vátryggingarsamninga, sbr. 10. gr. laga nr. 30/2004 um vátryggingarsamninga.

 

3. gr.

Innleiðing reglugerðar.

Með reglum þessum öðlast gildi hér á landi framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/1469 frá 11. ágúst 2017 um staðlað form fyrir framsetningu upplýsingaskjals um vátrygg­ingarafurð, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndar­innar nr. 304/2019 frá 13. desember 2019, sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópu­sambandsins nr. 14 frá 5. mars 2020, bls. 58-59. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi Evrópu­sambandsins nr. 23 frá 31. mars 2021, bls. 3-7.

 

4. gr.

Gildistaka.

Reglur þessar, sem settar eru samkvæmt heimild í 4. mgr. 10. gr. laga nr. 30/2004 um vátrygg­ingarsamninga, öðlast þegar gildi. Á sama tíma falla úr gildi reglur Seðlabanka Íslands nr. 1411/2021 um staðlað form fyrir framsetningu upplýsingaskjals vegna skaðatryggingar.

 

Seðlabanka Íslands, 11. febrúar 2025.

 

  Ásgeir Jónsson
seðlabankastjóri.
Rannveig Júníusdóttir
framkvæmdastjóri.

B deild - Útgáfud.: 26. febrúar 2025