Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 612/2024

Nr. 612/2024 23. maí 2024

REGLUGERÐ
um (1.) breytingu á reglugerð nr. 1551/2023, um greiðsluþátttöku sjúkratryggðra í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 16. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað orðanna „frá heilsugæslu- eða heimilislækni“ í 6. tölul. 1. mgr. kemur: skv. 4. gr. reglu­gerðar nr. 313/2017, um tilvísanir fyrir börn,“.
  2. Við 6. tölul. 1. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Börn á aldrinum tveggja ára til og með 17 ára greiða ekkert gjald fyrir bráða- og vaktþjónustu sérfræðinga í barnalækningum og þjónustu sérfræðinga í augnlækningum og kvensjúkdómalækningum.

 

2. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 17. gr. reglugerðarinnar:

  1. 3. tölul. 1. mgr. orðast svo: Börn greiða ekkert gjald.
  2. 4. tölul. 1. mgr. fellur brott.
  3. 3. tölul. 2. mgr. orðast svo: Börn greiða ekkert gjald.
  4. 4. tölul. 2. mgr. fellur brott.

 

3. gr.

Á eftir orðinu „heilsugæslustöð“ í 1. mgr. 20. gr. reglugerðarinnar kemur: eða sjúkrahúsi.

 

4. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 1. mgr. 29. gr. laga nr. 112/2008, um sjúkratryggingar, sbr. 2. mgr. 17. gr. og 2. mgr. 19. gr. sömu laga, öðlast gildi 1. júní 2024.

 

Heilbrigðisráðuneytinu, 23. maí 2024.

 

Willum Þór Þórsson.

Sigurður Kári Árnason.


B deild - Útgáfud.: 28. maí 2024