1. gr.
Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 32. tölul., svohljóðandi:
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/2613 frá 23. nóvember 2023 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 142/2011 að því er varðar umbreytingarráðstafanir varðandi útflutning á kjöt- og beinamjöli sem eldsneyti til brennslu. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 151/2024 frá 5. júlí 20214. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 85 frá 21. nóvember 2024, bls. 339.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 29. gr. a laga um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, nr. 25/1993, 7. gr. laga um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, nr. 22/1994, og 31. gr. a laga um matvæli, nr. 93/1995.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Matvælaráðuneytinu, 29. nóvember 2024.
Bjarni Benediktsson.
|