1. gr.
Gildissvið.
Reglur þessar gilda um nánari framkvæmd laga nr. 7/2020 um verðbréfamiðstöðvar, uppgjör og rafræna eignarskráningu fjármálagerninga, sbr. reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 909/2014 frá 23. júlí 2014 um bætt verðbréfauppgjör í Evrópusambandinu og um verðbréfamiðstöðvar og um breytingu á tilskipunum 98/26/EB og 2014/65/ESB og reglugerð (ESB) nr. 236/2012 (hér eftir CSDR), hvað varðar:
- Kennistærðir fyrir útreikning á fjársektum vegna uppgjörsbrests og starfsemi verðbréfamiðstöðva í gistiaðildarríkjum skv. 29. gr. laganna og 7. og 24. gr. CSDR.
- Varfærniskröfur fyrir verðbréfamiðstöðvar og tilnefndar lánastofnanir sem bjóða viðbótarbankaþjónustu skv. 47. gr., 54 gr. og 59. gr. CSDR.
- Efni tilkynninga um innra uppgjör skv. 9. gr. CSDR.
- Starfsleyfi, eftirlitskröfur og rekstrarlegar kröfur fyrir verðbréfamiðstöðvar skv. 12., 17., 18., 22., 25., 26., 29., 33., 37., 45., 46., 48., 49., 52., 53. og 55. gr. CSDR.
- Sniðmát og verklag fyrir tilkynningar og sendingu upplýsinga um innra uppgjör skv. 9. gr. CSDR.
- Stöðluð eyðublöð, sniðmát og verklagsreglur vegna starfsleyfisveitingar, úttektar og mats á verðbréfamiðstöðvum, vegna samstarfs milli yfirvalda í heimaaðildarríki og gistiaðildarríki, vegna samráðs yfirvalda sem taka þátt í að veita starfsleyfi fyrir viðbótarbankaþjónustu, vegna aðgangs í tengslum við verðbréfamiðstöðvar og að því er varðar snið skránna sem verðbréfamiðstöðvar skulu geyma skv. 17., 22., 24., 29., 33., 49., 52., 53. og 55. gr. CSDR.
- Aga í uppgjöri skv. 6. og 7. gr. CSDR.
2. gr
Tilvísanir og skilgreiningar.
Almennir fjárfestar: Með tilvísunum í reglum þessum til almennra fjárfesta eins og þeir eru skilgreindir í 11. tölulið 1. mgr. 4. gr. tilskipunar 2014/65/ESB er átt við almenna fjárfesta skv. 4. tölulið 1. mgr. 4. gr. laga nr. 115/2021 um markaði fyrir fjármálagerninga.
Fagfjárfestar: Með tilvísunum í reglum þessum til fagfjárfesta eins og þeir eru skilgreindir í 10. tölulið 1. mgr. 4. gr. tilskipunar 2014/65/ESB er átt við fagfjárfesta skv. 13. tölulið 1. mgr. 4. gr. laga nr. 115/2021 um markaði fyrir fjármálagerninga.
Fjárfestingarþjónusta og starfsemi: Með tilvísunum í reglum þessum til fjárfestingarþjónustu og starfsemi sem fellur undir tilskipun 2014/65/ESB er átt við fjárfestingarþjónustu og fjárfestingarstarfsemi skv. 15. tölulið 1. mgr. 4. gr. laga nr. 115/2021 um markaði fyrir fjármálagerninga.
Framkvæmd fyrirmæla: Með tilvísunum í reglum þessum til framkvæmdar fyrirmæla fyrir hönd viðskiptavina eins og hún er skilgreind í 5. lið 1. mgr. 4. gr. tilskipunar 2014/65/ESB er átt við framkvæmd fyrirmæla skv. 17. tölulið 1. mgr. 4. gr. laga nr. 115/2021 um markaði fyrir fjármálagerninga.
Framkvæmd uppgjörskaupa á bestu fáanlegu kjörum: Með tilvísunum í reglum þessum til skyldu til að framkvæma uppgjörskaup á bestu fáanlegum kjörum í samræmi við 27. gr. tilskipunar 2014/65/EB er átt við bestu framkvæmd skv. 48. gr. laga nr. 115/2021 um markaði fyrir fjármálagerninga.
Framseljanleg verðbréf:
Með tilvísunum í reglum þessum til framseljanlegra verðbréfa eins og um getur í a-lið 44. töluliðar 1. mgr. 4. gr. tilskipunar 2014/65/ESB er átt við verðbréf skv. a-lið 63. töluliðar 1. mgr. 4. gr. laga nr. 115/2021 um markaði fyrir fjármálagerninga.
Með tilvísunum í reglum þessum til framseljanlegra verðbréfa sem um getur í b-lið 44. töluliðar 1. mgr. 4. gr. tilskipunar 2014/65/ESB er átt við verðbréf skv. b-lið 63. töluliðar 1. mgr. 4. gr. laga nr. 115/2021 um markaði fyrir fjármálagerninga.
Með tilvísunum í reglum þessum til framseljanlegra verðbréfa sem um getur í c-lið 44. töluliðar 1. mgr. 4. gr. tilskipunar 2014/65/ESB er átt við verðbréf skv. c-lið 63. töluliðar 1. mgr. 4. gr. laga nr. 115/2021 um markaði fyrir fjármálagerninga.
Kauphallarsjóðir: Með tilvísunum í reglum þessum til kauphallarsjóða, eins og þeir eru skilgreindir í 46. tölulið 1. mgr. 4. gr. tilskipunar 2014/65/ESB er átt við kauphallarsjóði skv. 28. tölulið 1. mgr. 4. gr. laga nr. 115/2021 um markaði fyrir fjármálagerninga.
Peningamarkaðsgerningar: Með tilvísunum í reglum þessum til peningamarkaðsgerninga, annarra en ríkisskuldabréfa sem um getur í 61. tölulið 1. mgr. 4. gr. tilskipunar 2014/65/ESB, er átt við peningamarkaðsgerninga skv. 44. tölulið 1. mgr. 4. gr. laga nr. 115/2021 um markaði fyrir fjármálagerninga.
Ríkisskuldabréf: Með tilvísunum í reglum þessum til ríkisskulda eða ríkisskuldabréfa sem um getur í 61. tölulið 1. mgr. 4. gr. tilskipunar 2014/65/ESB er átt við ríkisskuld skv. 48. tölulið 1. mgr. 4. gr. laga nr. 115/2021 um markaði fyrir fjármálagerninga.
Ríkisútgefandi: Með tilvísunum í reglum þessum til ríkisútgefanda, eins og hann er skilgreindur í 60. tölulið 1. mgr. 4. gr. tilskipunar 2014/65/ESB er átt við ríkisútgefanda skv. 49. tölulið 1. mgr. 4. gr. laga nr. 115/2021 um markaði fyrir fjármálagerninga.
Uppgjörsfyrirmæli: Með tilvísunum í reglum þessum til uppgjörsfyrirmæla eins og þau eru skilgreind í i-lið 2. gr. tilskipunar 98/26/EB er átt við fyrirmæli skv. 7. tölulið 1. mgr. 2. gr. laga nr. 90/1999 um öryggi fyrirmæla í greiðslukerfum og verðbréfauppgjörskerfum.
3. gr.
Innleiðing reglugerða.
Með reglum þessum öðlast gildi hér á landi eftirfarandi reglugerðir framkvæmdastjórnarinnar (ESB) sem birtar eru í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 62 frá 24. september 2020, bls. 1-206, með þeim aðlögunum sem leiða af ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 20/2019, sem er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 48 frá 16. júlí 2020, bls. 36, sbr. einnig bókun 1 um altæka aðlögun við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. lög um Evrópska efnahagssvæðið, nr. 2/1993, þar sem bókunin er lögfest:
Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/389 frá 11. nóvember 2016 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 909/2014 að því er varðar kennistærðir fyrir útreikning á fjársektum vegna uppgjörsbrests og starfsemi verðbréfamiðstöðva í gistiaðildarríkjum. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/390 frá 11. nóvember 2016 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 909/2014 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla um tilteknar varfærniskröfur fyrir verðbréfamiðstöðvar og tilnefndar lánastofnanir sem bjóða viðbótarbankaþjónustu. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/391 frá 11. nóvember 2016 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 909/2014 um tæknilega eftirlitsstaðla sem tilgreina frekar efni tilkynninga um innra uppgjör. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/392 frá 11. nóvember 2016 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 909/2014 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla um starfsleyfi, eftirlitskröfur og rekstrarlegar kröfur fyrir verðbréfamiðstöðvar. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/393 frá 11. nóvember 2016 um tæknilega framkvæmdarstaðla að því er varðar sniðmát og verklag fyrir tilkynningar og sendingu upplýsinga um innra uppgjör í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 909/2014. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/394 frá 11. nóvember 2016 um tæknilega framkvæmdarstaðla að því er varðar stöðluð eyðublöð, sniðmát og verklagsreglur vegna starfsleyfisveitingar, úttektar og mats á verðbréfamiðstöðvum, vegna samstarfs milli yfirvalda í heimaaðildarríki og gistiaðildarríki, vegna samráðs yfirvalda sem taka þátt í að veita starfsleyfi fyrir viðbótarbankaþjónustu, vegna aðgangs í tengslum við verðbréfamiðstöðvar og að því er varðar snið skránna sem verðbréfamiðstöðvar skulu geyma í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 909/2014.
Með reglum þessum öðlast einnig gildi hér á landi eftirfarandi reglugerðir framkvæmdastjórnarinnar (ESB) sem birtar eru í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 66 frá 14. október 2021, bls. 3-55 og 116-117, með þeim aðlögunum sem leiða af ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 309/2019, sem er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 14 frá 5. mars 2020, bls. 68 og ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 219/2021, sbr. einnig bókun 1 um altæka aðlögun við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. lög um Evrópska efnahagssvæðið, nr. 2/1993, þar sem bókunin er lögfest:
Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1229 frá 25. maí 2018 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 909/2014 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla um aga í uppgjöri. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/70 frá 23. október 2020 um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) 2018/1229 um tæknilega eftirlitsstaðla um aga í uppgjöri, að því er varðar gildistöku hennar.
4. gr.
Gildistaka.
Reglur þessar, sem settar eru samkvæmt 1.-10. og 12.-24. tölulið 32. gr. laga nr. 7/2020 um verðbréfamiðstöðvar, uppgjör og rafræna eignarskráningu fjármálagerninga, öðlast gildi 1. febrúar 2022, að frátöldum 21.-38. gr. reglugerðar (ESB) 2018/1229 sem öðlast gildi 1. febrúar 2023. Við gildistöku reglnanna falla úr gildi reglur nr. 377/2021 um verðbréfauppgjör og verðbréfamiðstöðvar.
Seðlabanka Íslands, 22. desember 2021.
|
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri. |
Rannveig Júníusdóttir frkvstj. skrifstofu bankastjóra. |
|