1. gr.
Við 1. gr. reglugerðarinnar bætast tveir nýir töluliðir, 92. og 93. tölul., svohljóðandi:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/859 frá 18. mars 2024 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 37/2010 að því er varðar flokkun efnisins natríumsalisýlats með tilliti til hámarksgildis leifa í matvælum úr dýraríkinu. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 276/2024 frá 6. desember 2024. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 10 frá 20. febrúar 2025, bls. 831.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/860 frá 18. mars 2024 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 37/2010 að því er varðar efnið 17β-estradíól. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 276/2024 frá 6. desember 2024. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 10 frá 20. febrúar 2025, bls. 834.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum um matvæli, nr. 93/1995, lögum um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, 25/1993, og lögum um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr, nr. 66/1998.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Matvælaráðuneytinu, 27. febrúar 2025.
Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra.
|