1. gr. 1. ml. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar orðast svo: Veiðar á karfa (S.Mentella) í Síldarsmugunni (ICES svæði I + II), austan 22°V eru heimilar frá og með 1. júlí til og með 31. desember 2014. 2. gr. Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands, lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða og lögum nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 12. júní 2014. | F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, | Kristján Freyr Helgason. |
Baldur P. Erlingsson. |