Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Leiðréttingar:

Leiðrétt 10. apríl 2025:
Í stað „um (1.) breytingu á reglugerð ...“ í heiti reglugerðarinnar komi: um (2.) breytingu á reglugerð ...


Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 385/2025

Nr. 385/2025 1. apríl 2025


REGLUGERÐ
um (1.) breytingu á reglugerð nr. 460/2024 um strandveiðar.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. reglugerðarinnar:

  1. Á eftir 1. málsl. 1. mgr. kemur: Umsóknir um leyfi til strandveiða skulu berast Fiskistofu fyrir 22. apríl ár hvert og skal í umsókn tilgreina upphafsdag strandveiða innan strandveiði­tímabils skv. 1. mgr. 2. gr.
  2. Á eftir 2. málsl. 4. mgr. koma tveir nýir málsliðir sem verða 3. og 4. málsl., svohljóðandi: Um borð í hverri strandveiðiferð skal vera einn einstaklingur sem er lögskráður á skipið og á að lágmarki beint eða óbeint í gegnum lögaðila, meira en 50% eignarhlut í skipinu. Eignar­hald skips ræðst af skráningu í skipaskrá Samgöngustofu og eignarhald lögaðila miðast við skráningu raunverulegs eiganda hjá fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra.
  3. Í stað „og 2.“ í 3. málsl. 4. mgr. kemur: til 4.
  4. Á eftir 1. málsl. 5. mgr. kemur nýr málsl. sem verður 2. málsl., svohljóðandi: Eigandi lögaðila sem er lögskráður á fiskiskip á standveiðitímabilinu skv. 1. mgr. 2. gr. skal eiga meira en 50% í lögaðilanum.

 

2. gr.

Við ákvæði 1. mgr. 5. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, sem verður 9. töluliður, svo­hljóðandi: Skráning aflaupplýsinga við strandveiðar fer fram samkvæmt ákvæðum reglugerðar um stafræna skráningu og skil aflaupplýsinga, nr. 307/2023. Við vigtun á hafnarvog skal löggiltur vigtarmaður tengja saman aflaskráningu við það auðkenni sem aflaupplýsingar strandveiðibáts hefur fengið með stafrænni skráningu og skilum skipstjóra úr hverri veiðiferð.

 

3. gr.

Á eftir orðunum „um stjórn fiskveiða“ í 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar kemur: og laga nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar.

 

4. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 6. gr. a. laga nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða og 30. gr. laga nr. 57/1996 um umgengni um nytjastofna sjávar. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

 

Atvinnuvegaráðuneytinu, 1. apríl 2025.

 

Hanna Katrín Friðriksson.

Kolbeinn Árnason.


B deild - Útgáfud.: 8. apríl 2025