1. gr.
2. gr. gjaldskrárinnar verður svohljóðandi:
Notkunargjald.
Notkunargjald (aukavatnsskattur) leggst á stórnotendur skv. mæli, kr. 40,50 pr. m³.
2. gr.
3. gr. gjaldskrárinnar verður svohljóðandi:
Heimæðargjald.
Eigandi fasteignar skal greiða kostnað við lagningu heimæðar og uppsetningu að húsi skv. gjaldskrá þessari. Um heimæðargjald gilda að öðru leyti lög um vatnsveitur sveitarfélaga nr. 32/2004, með síðari breytingum, reglugerð um vatnsveitur sveitarfélaga nr. 401/2005, með síðari breytingum og reglugerð um Veitustofnun Seltjarnarness nr. 237/2011.
Fjárhæðir gjalda vegna heimæða eru eftirfarandi:
Fyrir heimæð |
25-32 mm |
153.502 kr. |
Fyrir heimæð |
40-63 mm |
286.068 kr. |
Fyrir heimæð stærri en |
63 mm |
479.998 kr. |
Viðbótargjald fyrir heimæð lengri en |
20 m |
2.062 kr. pr. m |
Gjaldið skal taka breytingum í janúar ár hvert miðað við byggingarvísitölu og skal grunnvísitala vera byggingarvísitala í desember 2018, 141,6 stig.
3. gr.
Auglýsing þessi er staðfest og samþykkt af bæjarstjórn Seltjarnarnesbæjar, skv. 7. mgr. 5. gr. og 10. gr. laga um vatnsveitur sveitarfélaga nr. 32/2004, með síðari breytingum, 11. gr. reglugerðar nr. 401/2005 um vatnsveitur sveitarfélaga, með síðari breytingum, og 6. gr. reglugerðar fyrir Veitustofnun Seltjarnarness nr. 237/2011, til að öðlast þegar gildi.
Samþykkt í bæjarstjórn Seltjarnarnesbæjar, 28. nóvember 2018.
Ásgerður Halldórsdóttir bæjarstjóri.
|