1. gr.
Í stað „318.532 kr.“ í 1. gr. reglugerðarinnar kemur: 342.422 kr.
2. gr.
Í stað „202.054 kr.“ í 2. gr. reglugerðarinnar kemur: 217.208 kr.
3. gr.
Í stað „59.047 kr.“ í 2. gr. a reglugerðarinnar kemur: 63.476 kr.
4. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 3. mgr. 33. gr. og 4. mgr. 36. gr. laga nr. 54/2006, um atvinnuleysistryggingar, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2017. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 1226/2015, um breytingu á reglugerð nr. 548/2006, um fjárhæð atvinnuleysistrygginga, með síðari breytingum.
Velferðarráðuneytinu, 23. desember 2016.
Eygló Harðardóttir félags- og húsnæðismálaráðherra.
Hanna Sigr. Gunnsteinsdóttir.
|