1. gr.
Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 97. tölul. svohljóðandi:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/1170 frá 23. apríl 2024 um breytingu á IV., VIII., XIII., XIV. og XV. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/404 að því er varðar skrárnar yfir þriðju lönd eða yfirráðasvæði eða svæði þeirra sem hafa heimild til að flytja inn sendingar af tilteknum dýrum og afurðum úr dýraríkinu til Sambandsins og um leiðréttingu á XIV. viðauka við hana að því er varðar skrána yfir þriðju lönd eða yfirráðasvæði eða svæði þeirra sem hafa heimild til að flytja inn sendingar af nýju kjöti af alifuglum og veiðifuglum til Sambandsins.
2. gr.
Framkvæmdarreglugerðin sem nefnd er í 1. gr. er birt á ensku í C-deild Stjórnartíðinda, sem fylgiskjal við auglýsingu nr. 19/2024.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum nr. 93/1995 um matvæli, lögum nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, og lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Matvælaráðuneytinu, 17. maí 2024.
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir.
|